Færsluflokkur: umræðan

Kæri Halldór.

Bandit Bandit Bandit  

Ekki vantar öfundina í þinn garð. Það er ótrúlegt hvað fólk getur bullað um ykkur bankadrengina. Þér rataðist aldeilis rétt orð, þegar þú sagðir að hver væri sinnar gæfusmiður, og bara gott á óráðsíufólkið sem tók alltof mikil lán. Auðvitað verður þetta fólk sem  kunni sér ekki  hóf að standa skil á skuldum sínum.  Rétt eins og Landsbankinn og hinir bankarnir. Það gengur ekki að hlaupa frá öllu saman það á og verður að borga.

Hugsið ykkur dónaskapinn, einhver flækingur sem vara að baða sig í einhverri mannlausri sundlaug fyrir vestan fann að því við þig drengurinn minn að þú borgaðir ekki fyrir þig og strákinn ofan í laugina, ég bara spyr djö..... kom honum það við þessum flækingi ?

Það var gott hjá ykkur Sigurjóni að senda bréfið til Hollands. Fjármálaeftirlitið hefur sennilega misskilið það, því þeir halda því fram að þið hafið lofað að börn og barnabörnin okkar muni borga ef illa færi. Menn halda að þé bara hægt að spyrja út í þetta, ég segi bara, hvernig dettur mönnum annað eins til hugar?  Auðvitað er bankaleynd yfir þessu öllu, hvað annað. Svo eru öfundarmenn að gaspra með það að þið drengirnir stundið fjármálaráðgjöf inn við sundnin blá, áræðanlega tóm lygi.

Svo er verið að segja að þú hafir lánað Óla fyrir kaupum á Búnaðarbankanum og fengið lán fyrir Bjögga og co. Hjá Búnaðarbankanum til að kaupa Landsbankann. Þetta kalla ég nú bara tæra snilld. Skil ekki hvað veldur þessari öfund út í þig, ég verð að segja það.

Þessar illu tungur eru að býsnast yfir því að þið hjónin eigið skuldlausa bíla. Auðvitað eigið þið þá skuldlausa þið kunnið á hlutina og eruð miklir gæfusmiðir.

Eins og þú hefur margsagt er þetta bankahrun ekki þér að kenna. Það eru einhverjir ljótir kallar í útlöndum sem á að kenna um það. Þú byggðir upp stórt ög öflugt peningaeitthvað og komst á hálaunastefnu sem margir nutu góðs af. En pakkið sem núna keppist um að rægja ykkur, segja að þjóðin eigi eftir að greiða þessa hálaunastefnu til Hollands og Englands þvílíkt hyski þetta pakk ég segi bara það.

Jæja Dóri minn dyrabjallan kallar svo þetta verður að duga í bili.

Bið kærlega að heilsa ykkur skuldlausu hjón.

 

Magnea.

 


Kæri Hreiðar.

Devil Bandit  

   Allt er þetta lið eins. Nú er ráðist á þig elsku Hreiðar minn fyrir eitthvað sem ljótir kallar út í heimi gerðu. Þessir ljótu kallar slitu bara allar lánalínur, það er ekki hægt að kenna þér um það. Ég sé ekki að þessu pakki komi neitt við hvar þú býrð með þinni konu, hvort það er Hlyngerði eða Hveragerði, hverjum kemur það við ? ég bara segi ekki annað. Þótt þið hjónin eigið 5 eða 6 millu bíl, hvað með það ? Hverjum kemur við þótt þu hafir slegir Kaupþing um nokkra millarða til að kaupa í Kaupþingi ég bara spyr ? Og hvað á það að þýða að nöldra yfir því,  þótt elskuleg frúin lýsi því yfir í lokuðum saumaklúbbi, að það sé ekkert vit í því að ferðast til útlanda nema í einkaþotu, sérstaklega ef börn eru með.  Svo eru þessir menn sem hafa horn í síðu allra sem þorðu að stjórna bönkunum  okkur öllum til heilla að draga fram allskonar sögur. Þótt þú hafir fengið 450 millur fyrir að stýra bankanum á skerið, þá er alveg óþarfi að vera að finna að því.  Þú ert búinn að biðja skúringarkonuna afsökunar á því hvað þú skrúfaðir út ú bankanum í laun, mér finnst það alveg nóg,  og engin ástæða fyrir þig að biðja fleiri afsökunar, enda ert þú enginn glæpon.

Þú ert konungur skattakonunganna og er ég hreykin af þér fyrir það. En að svetta málninu á húsið þitt finnst mér alveg gaga, ég tala nú ekki um það, og það rauðri, betur að hún hefði verið blá og verið örlítið jafnari á veggnum. Þetta var algjört fúsk ein og sást á myndinni i Mogganum, sveiattan bara.

 

Elsku Hreiðar minn hafðu það sem allarabest í Lux.

Kær kveðja.

Þín Magnea.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Kæri Karl.

DevilBanditÉg skil bara hvorki upp né niður í öllu sem sagt er um þig og þína fjölskyldu. Hvað er svo sem athugavert við að eiga 88 félög í skúffum, auðvitað borgarðuð þið útvarps-og sjónvarpgjald af þeim öllum, hvað svo sem annað ? Svo er verið að finna að því við ykkur bræðurna að einhver óbótasjóður hafi verið tæmdur. Auðvitað á að nota peninga ef þeir eru til, annars liggja þeir bara dauðir engum til gagns.Eins og Hannes segir það á að láta peningana grilla fyrir sig á daginn. Svo eigum við að detta í það á kvöldin, allir nema Davíð saklausi.  Svo er mér sagt að stöðumælavörðurinn sé að íhuga að skoða heilstætt og á breiðum grundvelli hvort hann eigi ef til vill að láta einhverja spyrja ykkur bræðurna hvað hefði orðið af öllum peningonum sem hurfu úr tryggingasjóðnum. Þvílík frekja ég segi bara ekki annað. Það er bara eins og öfundarpakkið sem þykist ekki eiga fyrir skólabókum haldi að það megi svívirða ykkur endalaust fyrir eitthvað sem kom fyrir ykkur og okkur, öllum að óvörum. Mér finnst alveg sjálfsagt af þér að stefna rógberunum fyrir rétt.  Bara súa alla þessa rógbera.Hvað á það eiginlega að þýða að nöldra yfir því þótt þið greidduð ykkur smáaura í arð, það voru jú bara 20 mega krónur, eða voru það 20 gígakrónur, sama er mér þetta er bara öfund og ekkert annað. Er það ekki kallað að peningarnir grilli fyrir ykkur? Hvað varðar fyrirtækin mín þá eru bæði Mílusteinn og Askur í góðum málum, allt annað sem sagt er um þau er haugalygi og ekkert annað. Það er því algjör óþarfi og dónaskapur að svetta rauðri málningu á húsið sem konan mín á, nær að hafa hana bláa fyrst verið er að þessu á annað borð. Hvað með það þótt ég eigi einhverja sumarbústaði á Flóída sem illar tungur kalla Flórinn, menn meiga jú eiga sumarbústað eða hvað ?Jæja Kalli minn ég þarf að skreppa á klóið svo ég segi amen í bili.Bestu kveðjur til ykkar bræðranna.Magnea

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband