Færsluflokkur: Dægurmál

Risinn ævintýri fyrir fortíðarbörn (1 af 11)

Einu sinni var risi sem átti heima í Fjarskiptaskógi í Fjaskiptalandi. Risinn átti stór frjósöm lönd. Þar lét hann rækta símtöl, gagnasendingar, breiðbönd og aðrar síkar plöntur sem almúginn var sólginn í. Risinn hafði í kringum sig stóra hirð allskyns sérfræðinga, einnig var fjöldi verkamnna sem höfðu það verkefni að framleiða símtöl, gagnasendingar og breiðbönd fyrir íbúa Fjarskiptalands.

 

Yfir öllu landinu réð kóngurinn Davíð hann hafði líka stóra hirð í kringum sig.Meðal hirðmanna var Pfar, hann var svo voldugur að allir smáir og stórir sem ræktuðu símtöl, fjarskipti og slíkar plöntur urðu að gera eins og hann ákvað.

 

Dag einn um  hádegisbil kom dvergurinn OG  til Pfar og bað hann að skaffa sér smá blett til að rækta á, hann langaði líka eins og risinn að rækta símtöl og svoleiðis til að selja á markaðtorginu í Fjarskiptalandi. Pfar spurði Davíð. Davíð sagði ok og dvergurinn fékk smá skika til að rækta á.


Hilton

Jæja þá er kosningavíman að renna af okkar mönnum við Austurvöllinn. Enn eru Geiri og Solla að leita að stjórnarandstöðunni. All er svo gott og bjart að maður fær bara glýju í augun, allir eru svo jákvæðir að það hálfa væri meira en nóg. En þó er eitt sem skyggir á ómælda ánægju mína með stjórnina, að vísu kemur það ekkert stjórninni við, eða svoleiðis. Skugginn stafar af því að vinkona okkar allra sem hefur verið bæði augnayndi og  séð okkur fyrir spennandi lesefni um nokkurt skeið á í vandræðum. Mér hefur dottið í hug hvort ekki sé hægt að ættleiða hana eins og gert var við Fisser, til að forða henni frá yfirvofandi vandræðum og leiðindum. Spurningin er hvort  Solla utanríkis væri til í að beyta sér fyrir ættleiðingunni við kollega sinn í USA. Það væri enginn smá ávinningur fyri þjóðina að fá gelluna ættleidda og maður nú ekki talar um landkynninguna sem við myndum fá út á það. Henni myndi líða betur og mér og Einari bróður myndi líða betur og  maður nú ekki tali um Össa og hina strákana við völlinn, allir yrðu alsælir. Það yrði tilefni til að skíra öll hótel á Íslandi Hilton. Hótel Hilton Reykjavík, Hótel Hilton Borg. Hótel Hilton Saga, Hótel Hilton Loftleiðir, Hótel Hilton KEA og svo framvegis og svo nýja ráðstefnuhótelið í Faxaflóa Hótel Hilton Paris. Fullkomið ekki satt ? En Solla þú þarft að hafa hraðann á, því sú sæta er á leið í leiðindin, það á víst að stinga henni inn í vikunni.

Bakþankar

Um daginn, rölti ég niður Laugaveginn í þungum þaunkum. Á mórts við Landsbankann mætti ég manni sem ég kannaðist lítillega við. Ég nikkaði til hans og hann nikkaði á móti. Ég herti mig upp og ávarpaði hann með því að bjóða góðan daginn. Hann tók dræmlega í kveðjuna en bauð samt góðan dag á móti. Jæja sagði ég langt síðan við höfum hist. Já sagði hann. Hvað er títt spyr ég hvað ertu að starfa núna ? O, það er nú heldur lítið svaraði hann..Ertu ekki ennþá í bankanum spyr ég. Nei  það var endurskipulagt og ég varð afgangs og látinn hætta. Nú en þú heppinn, látinn hætta með margar millur uppá vasan er það ekki ? Hann horfði á mig eins og ég væri ekki í lagi. Nei ég fór bara og fékk ekkert nesti með mér. Nú er ég í atvinnuleysissamfélaginu og er nú skráður í skuldaakademíuna, verð bráðum innritaður í gjaldþrotaakademíuna eða kannski látinn í greiðsluþrotasamfélagið. Nú var mér brugðið, hvernig gat þetta gengið með manninn. Hann er úr Háskólasamfélaginu stóð sig með prýði í íþróttaakademíunni og var meistari í mörg ár í 800 metra-hlaupaakademíunni. Var lengi virkur í launasamfélaginu og bjó í miðsamfélaginu. Þetta átti ég bágt með að skilja.

Svona er lífið þótt hann inni í banka nægði það ekki til lokasamnings uppá einhverjar millur. Hann hefði betur unnuð hjá Fláráðs Grúpp, þá væri hann sko ekki niðurlútur á rölti á Laugaveginum, þá væri hann sko í útlöndum að drekka kampavín og éta kavíar.

Ég kvaddi og hélt áfarm niður Laugaveginn. Fyrir framan Vísi stóð maður og horfði inn um gluggan á búðinni. Þegar ég nálgaðist sá ég að þarna var fyrverandi stærðfræði kenari úr gaggó. Ég gekk til hans og bauð honum góðan dag, hann leit á mig um stund, áður en hann tók undir kveðjuna. Jæja sagði ég til að segja eittvað. Jæja hvað sagði hann. Nú bara  sagði ég er eitthvað títt ?  Hvað ætti svo sem að vera títt, allt er að fara til fjandans, þeir hjá DV eru að drepa fólk og meiða um allt land, ég veit ekki hvar þetta endar. Jafnvel vinir mínir eru meiddir eftir þetta fólk. Ef ég væri ríkur mundi ég kaupa þenna andskotans Vísi og selja hann til niðurrifs. ég horfði á hann um stund og sagði svo ósköp sakleysislega, Þetta er nú verslunin Vísir, áttirðu ekki við dagblaðið Vísi. Hver er svo sem munurinn sagði hann og strunsaði niður  Bankastrætið.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband