Kæri Simmi glópalán

Aumingja Sigmundur minn glópalán, mikið getur fólk verið vont.

"Ótrú­verðugir eru þeir, og ættu þeir ábyrgu á Kast­ljósi og Frétta­stofu Rúv að sæta fullri ábyrgð fyrir þetta óþverra­legu aðför" að þér Simmi minn. skrifar theolinn Þetta eru landráðamenn sem ættu bara að vera á Hólmsheiðinni.

Það er ekki glæpur að eiga peninga í skattaskjólum ónei ekki aldeilis.

En hver er svo ástæðan fyrir því að menn eyða þjúhundruð þúsundum eða meira í stofnun fyrirtælja á Tortúlum ? Af hverju þurfti hæstvirtur Bjarni gæsalappi að nota Tortúlu félag til að kaupa hús á Florida. Margir íslendingar hafa keyft hús bæði á Spáni og í USA án þess að þeir þyrftu að gera það í gegnum Tortúlufélög.

Hvernig var það með lífeyrissjóð Nordals ráðsfrúnni. Var og er það nauðsynlegt að hafa hann í Tortúla félagi?

Það skyldi þó ekki vera að það þurfi að fela eitthvað ?

Það er deginum ljósara að glæpurinn liggur í því að upplýsa um þessa hluti, eins og candid theol bendir réttilega á í blogginu sínu.

Simmi minn láttu setja lög sem banna þetta slúður um Tortúafélags eigendur. "yes soo them all"

Þín Magnea kveður að sinni.


Bloggfærslur 5. júní 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband