Kæra framsóknarmadama.

UndecidedInLoveDevilWizard

Auðvitað er ekkert vit í því að selja bjór og vín í Bónus og Hagkaupum. Það segir sig sjálft og allir sem eru edrú skilja þetta. Þið hin sem eruð á fyllerii sjáið  hvort sem er ekki neitt, skiljið heldur ekki neitt, svo það þýðir ekkert að spyrja ykkur.

Mér finnst að það ætti líka að hætta sölu blýanta, kúlupenna og hverskyns ritfanga í Bónus og Hagkaupum. Fólk sem kaupir svona vöru kann ekkert að fara með hana frekar en vínið. Það bara skrifar einhverja djöfuls vitleysu um framsókn og sjallanna, tóm lygi auðvitað.

Mér finnst að skriffæri ætti að selja undir eftirliti opinberra embættismanna, og taka loforð af þeim sem fá skriffæri, um að þeir skrifi ekki illa um frammara og sjallara. Svo væri ekki úr vegi að þeir séu látnir taka písa próf í skrift áður en þeir fái afgreiðslu í ritfangaverslun ríkisins.

Til ykkar lesendur góðir ef einhverjir eru segi ég bara þetta. Dettið í það og skrifið lofgjörð til framsókar maddömunar, og hans Bjarna míns gæsalappa.

Bestu kveðjur.

Magnea

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband