Kæri Grímur.

BlushW00t

Grímur minn hvernig dettur þér eiginlega í hug að búa til
þetta endemis kvótarugl ? „ I simply ask."  

Hvað á svona lagað að þýða ? spyr ég bara. Hvernig eiga
kvótagæjarnir að hafa efni á því að byggja hallir kaupa dagblöð og fyrirtæki
sem þeir settu sjálfir á hausinn? Það er deginum ljósara að ef þeir eiga að
borga líka fyrir fiskinn þá geta þeir þetta ekki. „No way." 

Hvernig er þetta eiginlega með þig Grímur minn, ertu
búinn að gleyma hvernig á að leggja saman og draga frá? Þetta er kennt held ég
ennþá í einhverjum skólum. Það gefur auga leið ef hagnaður er tveir milljarðar
á einu ári og það kostar einn og hálfan milljarð að endurnýja einn togara, þá
eru tuttugu ára einkaleyfi hvergi nóg, bara segi ekki meir. „tell no more." 

Svo ætlar þú ofan í allt að leyfa einhverjum fúskurum að veiða
þrjá fiska af hverjum hundrað sem má veiða. Þessir fúskarar þekkja ekki þorsk
frá grásleppu hvað þá meir. Þaðan af síður vita þeir hvað er sporður og hvað
haus á þessum fiskum sem þeir þekkja ekki.  

Grímur minn hvernig dettur þér í hug að okkar ástkæru
útgerðarmenn sem kaupa allt mögulegt fyrir tap og afskriftir útgerðanna, geti
borgað fyrir fiskinn sem þeir veiða fyrir okkur af einskærri góðmennsku? Nóg er
að þeir borgi Færeyingum þó við förum ekki líka að rukka þá. „no pay I say." 

Grímur minn ég myndi mæta hjá ykkur á fundinn á Akureyri,
ef ég væri ekki svona slæm í mjöðminni. 

Talaðu bara ekki af þér Grímsi minn. 

Þín Magnea.

InLoveKissing



 


Kæri Geir.

SmileInLove

Skelfing er ég lukkuleg með þennan landsdóm. Þú vannst
eins og ég sagði alltaf. Þessir kommúnistar og ofstækisfólk úr hreyfingunni sem
voru að bögga þig ættu bara að skammast sín. „Yes"  Eins og við vitum bæði var þetta bara klámhögg
ætlað til þess að koma óorði á blessaðan blásaklausa flokkinn okkar. „fock them
all." 

Ég skal bara segja þér Geir minn að ég veltist um af
hlátri yfir þessum skrípadómi, ég hef ekki hlegið svona mikið í langan langan
tíma svei mér þá.

Auðvitað er ekkert athugavert við að gera eins og allir
hinir, þessi stjórnarskrá er hvort sem er tómt bull og eingin þörf á að taka
hana of hátíðlega, ó nei.  

Geir minn ég og mitt fólk stendur með þér í baráttunni
við illu öflin sem vilja skemma mannorðið þitt og þíns flokks. „bad people." 

Ég á bara ekki til eitt einasta orð yfir þessari frekju í
fólkinu. Að reiða hátt til höggs og brenna svo af, svei barasta.

Það segir sig sjálft að það var tilgangslaust að rausa eitthvað um fall
bankanna við einhverja ráðherra sem höfðu hvort sem er ekki vit á neinu. „no
way" ég segi bara ekki annað.  

Ég er að spá í að stofna sjóð til að safna peningum fyrir
þig út af þessum málskostnaði sem lögfræðingarnir eru að rukka. Hvernig væri
svona minningarsjóður,? gæti heitið til dæmis HAAARDe sjóðurinn. Þá geta allar
Ragnheiðurnar sent svona minningarkort til þín og látið eitthvað smotterí af
hendi í sjóðinn um leið. Meira um það seinna elsku Geir minn. 

Hlakka til að koma í sigursamkvæmið til þín.

Þín Magnea.Crying



 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband