Kæra Vigdís

Sick Crying Kæra Vigdís. Við munum það nú svo
vel þegar félagið okkar setti þá reglu að kynjaskipting ætti að vera 40%
kallpeningur ekki minna, og 40% kvenpeningur ekki minna, þegar skipað er í
áhrifastöður og embætti.  Að vísu var svo sagt að útaf þessari reglu mætti víkja en það yrði að vera augljósar og gensæjar ástæður fyrir því.

Elsku dúllan mín, sérðu ekki hvers vegna Simmi vill ekki fá þig í ráðherrastól?  Ég bara spyr.

Það er svo sem ekki von að þú fattir það, en dúllan mín, það er bæði augljóst og gensætt. Þú ert svo hundleiðinleg og frek að hann treystir sér ekki til að leggja það á ráðherra-klúbbinn sinn  að
hafa þig með.

Hugsaðu þér bara í ráðherraveislum ef þú færir að bölva einhverju til dæmis rauðvíninu eða
eitthvað, það myndi bara setja alla úr stuði. Þú verður bara elsku Vigga mín að
gleypa þennan bita, ég mæli með íslenskum bjór til að skola þessum bita niður með.

Ég hef samband við tækifæri.

Bestu Kveðjur
Magnea


Kæri Bjarni

BlushWizardWhistling    Hvað eru þessir menn að meina þegar þeir segja að þú hafir
lofað að framkvæma en ekki setja nefndir til að tefja  fyrir? Ég bara segi það Bjarni minn gæsalappa-vafningur,
það þýðir ekkert að flana að þessum 
forsendubrestum. Heldur fólk bara að það þurfi ekkert að skoða þetta ?
Það var ekki svo glæsilegt þegar Grímur skildi við kassann galtóman  með skuldaviðurkenningar í allar áttir „I own you"

Nei vinurinn minn, Grímur og Jóka æstu hungrið
upp í hrægömmunum rétt áður en þau hættu að leika sér með fjöreggið. Nú slefa hrægammarnir
og heimta meiri aur.

Já Bjarni minn, þið Simmi glópalán hafið sko í margt að líta
næstu mánuði. Er það ekki bara helvítis kommaáróður að þið XD og XB hafið sett
í fangið á Grími og Jóku árið 2009, 216 milljarða skuld og 18,6 % verðbólgu.

Er það ekki líka bara samskonar kommúnistaáróður að í fangið
á ykkur hafi Grímur og Jóka kastað 3,6 milljarða skuld og 4,8 % verðbólgu? Ég
bara spyr. Það sjá náttúrulega allir að það er ekkert smá til að glíma við fyrir ykkur.

Auðvitað þarf að lækka skatta og afnema veiðigjöldin til að
redda þessu, hvað annað má ég bara spyrja?

Nei Bjarni minn, láttu sem þú heyrir ekki þetta nöldur í gullfiskunum,

þeir gleyma þessu hvort sem er.

Bless í bili elsku drengurinn minn.

Þín Magnea

Kissing Heart love you

Kæri Staksteinn.

LoL Cool Bandit  Það er mál að linni. Þetta nær bara ekki nokkurri átt að þurfa að
borga fyrir að draga lífsbjörgina í bú. Ég bara veit ekki hvað þau Grímur og
Jóka voru eiginlega að hugsa. Að pína útgerðina til að borga þjóðinni rentu af
auðlindinni nær bara ekki nokkurri átt, þvílík ósvífni segi ég bara. Ég treysti
þér vinurinn minn til að tala við þá Bjarna gæsalappa-vafning og Simma
glópalán, og láta þá hætta þessari vitleysu undir eins."right away,yes".

Að hugsa sér að rukka blessaða útgerða englana  um heilar átta krónur fyrir kílóið er
svívirða. Það er allt annað að borga blessuðum frændum okkar hundraðkall á
kílóið það sjá allir."Every body yes"

Staksteinn elsku vinurinn haltu áfarm að hamra á þeim Simma og Bjarna og
láttu þá endurgreiða blessuðum englunum það sem þeir hafa borgað, ef þeir hafa
þá borgað eitthvað og ekki gleyma vöxtunum. Sanngjarnt er að rentan af þessu
verði samsvarandi vanskilavöxtum, enda er þetta veiðigjald ekkert annað en
mínus-gjald.

Elsku Staksteinn minn ég elska þig

Þín Magnea


Kæri Sigmundur glópalán

LoLÞað er ekki ein lygabáran stök. Það hlaut að liggja að,
þessi skötuhjú Grímur og Jóka, fölsuðu ríkisbókhaldið rétt fyrir kosningar.
Hvernig áttir þú að vita það? En þú lætur nú samt eftir Bjarna gæsalappa að
létta sköttunum af hátekjufólkinu.

Sigmundur minn haltu fast við þitt og losaðu vini þína
undan veiðileyfisokrinu, ég er viss um að  Bjarni gæsalappi verður himinlifandi. Það nær bara ekki
nokkurri átt þetta kjaftæði um að þú ætlir að svíkja vitleysinganna sem kusu
þig. Auðvitað færir þú niður skuldir vina og vandamanna þó það nú væri, ég segi
það bara. Þessi ómerkilegi Seðlabanki er að ljúga því að okkur að staðan sé með
ólíkindum sæmileg miðað við hrunið sem þið frammarar og íhaldsenglarnir skipulögðuð.
Nei Simmi minn við látum þessi illfygli ekki komast upp með svona kjaftæði.
Farðu í máð við þetta hyski bara eins og skot.

Simmi minn elsku drengurinn verðum í sambandi.

Bestu kveðjur, Magnea


Kæra Harðabirna.

Happy Undecided Ég fékk í hnén þegar ég heyrði þig segja, „auðvitað kemur Bjarna
gæsalappa það einum við hvernig hann dílar við Simma glópalán" elsku Harðabirna
mín svona eiga varaformenn að vera, ekki sífellt að anda ofan í hálsmálið á
foringjanum. Þessir blaðasnápar eru bara að hugsa um að koma illindum af stað
með þessum bjánalegu spurningum. „Yes stupid question".

Láta sér  detta í hug að spyrja þig gullið mitt, að því hvort þér finnist eðlilegt að fá ekki að fylgjast með
dílnum, við Simma glópalán. Eins og þessum blaðasnápum komi eitthvað við hvað varaformanni
finnst, halda þessi  illfygli að varaformanni
komi eitthvað við. Nær væri fyrir þá að spyrja Davíð fyrrverandi hvað honum
finnst, ég segi bara það. „Yes ask David".

Elsku dúkkan mín þú ert nú alltaf svo sæt, best fyrir þig að vita
ekkert, þú gætir fengið áhyggjuhrukkur á sæta ennið þitt ef þú bara vissir
hvaða díla Bjarni gæsalappa-vafningur er að gera við Simma glópó.

Bless í bila elsku Harðabirna mín „I love you"

Þín ævinlega einlæga.

Magnea


Kæri Bjarni gæsalappi.

Wink Gasp  Þegar ég heyrði að þú
ætlaðir að standa fastur fyrir með skattalækkanirnar, fór ég í skápinn sem
konan geymir silfrið í.

Eftir nokkurt grams í
silfrinu fann ég skeið sem mér fannst vera hæfilega stór fyrir skyrát.

Hvað er að sjá þetta
segi ég við konuna, skeiðin er kolsvört, á þetta ekki að vera silfurskeið ?

„yes silver spoon"  Hún gjóar á mig augunum og segir ósköp rólega,
en þó með þungri áherslu. Jú þetta er silfurskeiðin sem hún amma mín gaf mér í
skírnargjöf fyrir fyrir 71 ári ef ég man það rétt. Hvað ætlar þú svo sem að
gera við hana? Ha ég bara éta skyrið mitt með henni, en hún er bara svo svört.
Pússaðu þá skeiðina maður það er silvo-brúsi í þvottahúsinu. Hvað er þetta því
viltu endilega fara að nota silfurskeið  í skyrið?

Nú þegar þú Bjarni minn gæsalappa-vafningur ert búinn að lækka skattana hef ég sko alveg efni á
því að hafa rjóma út á skyrið, og ekki nota ég þá einhverja ómerkilega blikk
skeið, nei ónei silfurskeið er við hæfi. Er ekki annars öruggt Bjarni minn að
það verði gert í einum grænum hvelli þegar 
þið Sigmundur glópalán eruð búnir með vöfflurnar og pönsurnar.

Guð blessi ykkur drengina sem eru svo góðir að lækka skattana.

Þín Magnea


Kæru íslensku kjósendur.

SickLoL

Nú er Guð hættur að blessa Ísland, mikið var segi ég bara.
Var það ekki annars Geiri harði sem bað Guð um að blessa ísland ? Og hvað gerði
svo Guð ?Hann sendi Grím og Jóku, þau áttu að fyrir Guð sjálfan að
blessa Ísland. „yes bles you"

Þegar ég vaknaði og frétti mér til mikillar ánægju að Grímsi
og Jóka væru hætt að blessa Ísland, hugsaði ég bara, það var mikið.Er þá Guð loksins
hættur að blessa Ísland ?

Núna einhverjum dögum síðar eru þeir Bjarni gæsalappa-vafningur
og Sigmundur glópalán byrjaðir að blessa Ísland, hvor Guð veit af því fylgir
ekki sögunni.

Mér er sagt og auðvitað er það dagsatt, að þeir hafi náð samkomulagi
um veigamikil mál.

Til dæmis er ákveðið að Sigmundar glópaláns fólkið fái að
kaupa Landsbankann, hvort þeir kaupa fyrir lánsfé frá ARI-JÓN banka fylgir ekki
sögunni, en er talið mjög líklegt.

Bjarna gæsalappa-vafnings fólkið fær á móti að kaupa
Landsvirkjun, en þar er meiri óvissa með fjármögnun, talið er að þeir fái lán
hjá útibúi gamla Landsbankans á Tortúla eða hjá útibúi DanskeBank á Kípur.

Svo er það með þessi tuttugu-prósent. Mér er sagt að það sé
líka samkomulag um þau. Þar er á þessa leið:

20% skuldugustu framsóknarnanna fá allar sínar skuldir
niðurfelldar, og mega nefna fjórar fjölskyldur sem verða að vera náskyldar
Sigmundi eða konunni hans, sem einnig fá niðurfellingu allra sinna skulda, og
það sem meira er þær eiga að fá í reiðufé sömu upphæð og felld er niður.

20% skuldugustu sjálfsstæðismanna fá líka allar sínar
skuldir niðurfelldar, að auki má Bjarni gæsalappa-vafningur ákveða
niðurfellingu skulda 15 vina og 20 vandamanna, sem fá svo í Evrum jafn háa
upphæð og felld verður niður. Það verður Seðlabankans að græja það.

Þið ágætu kjósendur, þið hafið bjargað Íslandi.

Þar með er þungu fargi létt af fólkinu í landinu. Heimilin í
landinu eru í góðum málum. „yes in good mál"  20% svínvirka.

Þetta segi ég ykkur í trúnaði. Látið það samt leka á netið.

Kæru kjósendur meira verður þetta ekki í bili.

Ykkar Magnea.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband