22.6.2010 | 13:35
Kæri Pétur.


Mikið skil ég þig vel, það er ekki mikið varið í þetta þingdrasl, ég bara skil ekkert í því hvað þú ert eiginlega að gera með að sitja á þessu þingi. Það er ekki einu sinni hægt að lifa á þessum lúsarlaunum sem borguð eru fyrir það. Þeir þarna sem ráða þessu gefa bara ekkert fyrir alla menntunina, heil átta ár í Súpergaggó á Melonum og reynsluna sem þú býrð yfir, þeir eru kannski búnir að gleyma hver stofnaði Kaupþingi eða hét það Raupklink, ég man þetta aldrei. Svo má ekki taka við neinum mútum, svo ég skil þig vel þegar þú segist ekki nenna þessu lengur. Það er bara ekkert varið í þetta, no man.
Þú ert ekki einn um að þegja yfir mútunum, er ekki Kristján flokksbróðir þinn og hún Unnur Brá flokkssystir þín í sömu sporunum svo má ekki gleyma henni Jónínu Rós sem er í vinstri armi Sjálfstæðisflokksins sem sumir kalla Samfylkinguna, hún Jónína er svo sæt, að mann langar bara að fara á þing, yes man I love her. Hálf milla hvað með það, hún þarf ekkert að muna hvaðan svoleiðis smáaurar komu, ég meina.
Nei Pétur minn ég segi bara gefðu skít í þetta Alþingi sem er ekkert annað en samkoma mútuþega svona á heildina litið, I mean it, fuck them all. Áttu ekki ennþá eitthvað í sparisjóðunum? Þú veist fé án hirðis eða eitthvað svoleiðis. Mér er sagt að það hafi glatast. En ég trúi ekki að þú með margar Súprgaggó gráður í allskonar peningafræðum, eftir átta ára nám þar, hafir tapað á þessum sparisjóðum, no way.
Elsku drengurinn minn mikið hlakka ég til að sjá þig á kassa í Bónus, þegar þú verður laus af þessu leiðindaþingi þarna niður á Austurvelli. Þú færð áræðanlega greitt þar eftir þekkingu á fé bæði án og með hirði. Þar er líka til sölu fé sem er búið að sundurgreina og frysta og pakka í þægilegar umbúðir fyrir okkur aulana, sem höfum ekkert vit á fé hvorki dauðu né á fæti.
Þessi skrif um þig í ekki mogganum er ekkert annað en einelti, I say so and mean it.
Jæja Pétur minn ég skrifa þér svo aftur við tækifæri
Þín einlæga
Magnea
18.6.2010 | 11:29
Kæri Georg.
Mikið er ég stolt af þér. Bara búinn að fá Hönnu Birnu í liðið með þér, ekkert smá afrek, I mean it. Bjarnfreður hlýtur að vera í skýjunum yfir velgengninni hjá þér. Flottur Georg í Höfða þegar þú afhnetir konunni einhver verðlaun eða heiðurseitthvað. Það þurfti svo sem að gera athugasemd þetta pakk sem er ekki með á nýjustu tískunni. Hvað hedur þú að þetta hyski hafi verið að nöldra nema hvað ? Það fann það út að þú hafir ekki verið með bindi þarna í Höfðanum og segir meira að segja að það hafi eldrei séð þig með bindi, svo fussar það og sveiar. You dont care. I dont care. Þetta pakk getur sko verið með eins mörg bindi eins og það vill. Því kemur sko ekkert við hvort þú sért með bindi eða ekki, og hana nú. I mean it.
Flott af þér að gefa í sund fram á haust flottur Georg ég segi ekki annað. Nú er enginn afsökun fyrir börn, unglinga og gamalmenni að fara í sund og hafa það næs í pottunum innanum allar sætu skvísurnar, maður lifandi.
Hvaða Jón Gnarr eru menn alltaf að tala um ? Það ert þú Georg Bjarnfreðarson sem ert Borgarsjóri, en ekki einhver Jón Gnarri, er það ekki alveg ljóst ? Þetta eru nú meiri grínararnir sem eru að uppnefna þig Georg minn. Jón Gnarri ég á bara ekki orð, no man. I mean it.
Getur þú Goggi minn ekki látið hann Gísla litla Martein hafa eitthvað að dunda sér við ? Hann er jú búinn að mennta sig í stórborgar hjólastígum í Edinborg, þar sem fólki dettur ekki til hugar að hjóla eitt eða neitt. Hann er svo kjút að hann Gísli minn Marteinn. Það er ekki hægt að segja sama um Júlla Vífil, láttu hann bara gera eitthvað sem ekki skiptir neinu máli, því verður klúðrað hvort sem er. Hann gæti til dæmis verið að snudda kringum tónlistahúsið, hann er víst hámenntaður söngvari þó ekki búinn að syngja sitt síðasta.
Elsku Georg láttu ekki trufla þig þótt fólk sé að uppnefna þig, haltu fast við stefnuleysið og grínið. Ég skrifa aftur við tækifæri
Þín eilæga.
Magnea
18.6.2010 | 08:05
Hvaða rugl er þetta.


Hvaða rugl er þetta með gengistryggðu lánin ? Afskiftir hvað segi ég bara, það eru engin verðmæti afskrifuð þótt snúið sé ofanaf gengistryggingar vitleysunni. Raunveruleg verðmæti hafa ekki horfið, heldur pappírsverðmæti sem eru raunar engin verðmæti, eins og Dabbi Staksteinason sagði einu sinni, og ekki lýgur Dabbi frekar en mogginn.
Þið þarna bankamenn ættuð að sjá sóma ykkar og segja sem minnst, það sem fer í taugarnar á ykkur en náttúrulega það að þið getið ekki státað ykkur og greitt ykkur bónusa og árangurgreiðslur af þessu gefi fé sem varð til við gengisfall krónunnar. Nú blasir það við að margir sem eru í erfiðleikum sjá fram á að geta lifað eðlilegu lífi í friði fyrir ykkur.
Hvað verður nú gert fyrir þá sem eru búnir að missa eignir sýnar vegna lögbrota lánastofnana ?
Hver stóð fyrir þessum lögbrotum ? Verða þeir dæmdir fyrir þau ? Mér skilst að lögbrot séu saknæm, og þeir sem þau fremja verði að refsa með einhverju móti. Einhver fjárspekingur hlítur að hafa fundið þetta upp með gengistrygginguna. Ætli það þurfi að skipa sérstaka rannsóknarnefnd til að finna sökudólgana, eða er bara nóg að spyrja einhvern fyrrverandi bankastjórann ?
Ef snúið verður ofan af þessu ætti Sigmundur glópalán að kætast, þá getur hann hætt að væla um 20 % afskriftir eða hvað það nú var sem hann tuldraði um, svo maður tali nú ekki um Bjarna gæsalappa, N1 hugsanlega bara í góðum málum, svo gott sem skuldlaust, maður lifandi.
7.6.2010 | 06:55
Kæri Georg


Hvernig hafið þið það hún Bjarnfreður og þú elsku drengurinn minn ? Ég vona bara að þið takið ekki mark á honum Dabba Staksteinasyni og þeim blýöntum sem eru alltaf að stríða þér.
Vertu ekkert að lesa leiðindin um þig sem byrtust í Mogganum í gær. Það var einhver kelling að segja að þú sért leiðinlegur og vissir ekkert. Það eru alltaf einhverjir að agnúast út í snillinga sama hvar er. Þessi Agnes Braggadóttir sem er aðal agnúinn út í þig núna er einn af blýöntum Dabba Staksteins, svo vertu bara ekkert að taka þetta alvarlega, þau hafa aldrei haft neitt skopskyn hvort eð er, no way me frend.
Nei Goggi minn, haltu bara fast við að fé þennan ísbjörn, sama hvað fólk segir. Ísbjörn og leikskólapláss, það er ekki hægt að bera það saman. En leikskólapláss og tóma strætóa það mætti reyna að bera það saman. Hvað er til dæmis hægt að hýsa á leikskóla mörg börn fyrir þrjá tóma strætóa ? reiknið þið nú. Svo er þetta fólk eitthvað að væla um að þú svarir ekki einhverjum fárálegum spurningum um það hvað þú ætlir að gera fyrir borgina. Þér ber bara enginn skylda til þess, þú ert borgarstjórinn og bara segir það sem þú vilt. Nú ef þú vilt ekki segja eitthvað. Þá hvað með það, maður má nú þegja ekki satt. Þetta pakk sem vill heldur heyra einhverja vitleysu heldur en ekki neitt, ætti að fara að átta sig þá því að þegar þú þegir, þá ertu í rauninni að segja heilmikið.
Hvað er þessi Jón Gnarri alltaf að þvælast fyrir í fréttunum af þér. Er hann eitthvað skyldur þér eða hvað ? Er kannsi búið að klóna þig ? Mér er þetta bara alveg óskiljanlegt Goggi minn.
Er ekki hægt að koma þessum blaðasnápum um skilning um það að þú ert Georg Bjarnfreðarson með fimm háskólagráður, en ekki einhver Jón Gnarri meiraprófsbílstjóri . Hverjum mundi detta í hug eitt augnablik að kjósa mann í borgarstjórn sem ekki hefði háskólagráðu, ég segi nú ekki annað, no way.
Haltu áfram Georg minn og láttu ekki þessi illfygli hafa áhrif á þig.
Þín Magnea.
5.6.2010 | 12:16
Kæri Georg

Þá er komið að því að óska Bjarnfreði til hamingju með strákinn, bara orðinn borgarstjóri hvorki meira né minna. Það var sniðugt hjá þér að hafa Dag með þér. Það hefði verið hræðilegt ef þú hefðir valiið Sylfíu Nótt með þér í þetta ojbarasta. En auðvitað er klókt af þér að hafa einhverja sameitthvað til að tilkynna okkur ef til dæmis þarf að hækka orkuna eða útsvarið. Þú tekur að þér allt það sem skemmtilegt er og lætur Dag um leiðindin, enda sagðir þú alltaf að það ætti að vera gaman, minn maður segi ég bara , me man what else.
Ég ætlaði alltaf að minna þig á loforðið sem þú gafst fyrir kosningarnar, þú mannst þetta með bílstjórann. Ég er alveg til í að vera einkabílstjórinn þinn og sitja í farþegasætinu eins og þú sagðir, ætlarðu sjálfur að keyra. Þetta hentar mér stórvel, ég nefnilega missti prófið um daginn.
Nú getur þú keyrt og ég sem einkabílstjóri drukkið mitt bús án þess að eiga á hættu einhver leiðindi frá löggunni. Pott þétt, I say no more .
Voruð þið ekkert lofthræddir þarna uppá þakinu? Einhverjir höfðu orð á því að réttast væri af ykkur að hoppa frammaf og taka flugið. Það er nú það, alltaf eru einhverjir brandarakallar á ferðinni.
Ég er enn að velta fyrir mér þessu Jóni Gnarra sem allir eru að tala um. Er hann ekki bara bróðir þinn Goggi minn ? Er hann ekki bara einhver leikari eða svoleiðis ? Þú verður sko góður þegar þið komið saman í norrænu Borgarstjórapartíonum þú kannt svo mikið sænsku. Þú verður sko ekki í vandræðum með að tjá þig í þeim. Mundu bara að drekka ekki of mikið.
Þú skalt ekkert taka mark á honum Dabba Staksteinssyni, hann bara öfunar þig fyrir hvað þú ert fyndinn og frumlegur. Honum datt aldrei í hug að gera neitt fyndið meðan hann var
Sebastían borgarstjóri. Það verður annað upp á teningnum núna, yes me frend.
Elsku Georg minn gleymdu mér ekki þegar þú hugar að einkabílstjóra fyrir næstu ár.
Ég á eftir að skrifa þér fljótlega Goggi minn.
Þín Magnea.
4.6.2010 | 12:29
Kæri Eiríkur.
Þessi rannsóknarskýrsla sem gefin var út af óvinum Seðlabankans, er nú meira bullið. Auðvitað voruð þið Davíð alltaf að vara við. Auðvitað voruð þið Davíð alltaf klárir á stöðu bankanna. Þessir illpennar sem nú hafa ráðist á ykkur eru ekkert annað en öfudsjúkir og illa uppaldir lúserar, I mean it.
Eins og þú sagðir þá voru virtir endurskoðendur búnir að skrifa upp á alla reikninga og uppgjör Landsbankans tíu mínútum fyrir hrun, og þá var allt í þessu fína lagi. Hvernig dettur svo nokkrum manni í hug að halda því fram að Seðlabankastjórar hafi haft eitthvað með þetta að gera ? Meira að segja var Jonni í fjámálaeftirlitinu búinn að gefa baunkunum næsthæstu einkunn bæði fyrir og eftir hrunið. Ég er alveg viss um að þessar aðfinnslur út í ykkur í þessari svonefndu rannsóknarskýrslu er tóm lygi, I say so.
Þið Eiríkur minn og þeir félagar þínir Davíð og hvað hann nú heitir þessi þriðji, voruð alltaf með þetta á hreinu. Ég er sannfærð um að allar þessar viðvaranir frá Seðlabaunkum í útlöndum hafa ekki átt víð Seðlabankann ykkar, enda segir þú að hrunið hafi ekki verið þér að kenna, ég bara spyr, hver heldur það í alvöru ?
Nei það á að stinga allri þessari rannsóknarnefnd í steininn og láta þetta fólk endurskrifa Litlu gulu hænuna.
Eiki minn það er rétt hjá þér að skrifa þina eigin höfuðlausn, það gerir það víst enginn fyrir þig.
Bestu kveðjur.
Magnea,Þessi rannsóknarskýrsla sem gefin var út af óvinum Seðlabankans, er nú meira bullið. Auðvitað voruð þið Davíð alltaf að vara við. Auðvitað voruð þið Davíð alltaf klárir á stöðu bankanna. Þessir illpennar sem nú hafa ráðist á ykkur eru ekkert annað en öfudsjúkir og illa uppaldir lúserar, I mean it.
Eins og þú sagðir þá voru virtir endurskoðendur búnir að skrifa upp á alla reikninga og uppgjör Landsbankans tíu mínútum fyrir hrun, og þá var allt í þessu fína lagi. Hvernig dettur svo nokkrum manni í hug að halda því fram að Seðlabankastjórar hafi haft eitthvað með þetta að gera ? Meira að segja var Jonni í fjámálaeftirlitinu búinn að gefa baunkunum næsthæstu einkunn bæði fyrir og eftir hrunið. Ég er alveg viss um að þessar aðfinnslur út í ykkur í þessari svonefndu rannsóknarskýrslu er tóm lygi, I say so.
Þið Eiríkur minn og þeir félagar þínir Davíð og hvað hann nú heitir þessi þriðji, voruð alltaf með þetta á hreinu. Ég er sannfærð um að allar þessar viðvaranir frá Seðlabaunkum í útlöndum hafa ekki átt víð Seðlabankann ykkar, enda segir þú að hrunið hafi ekki verið þér að kenna, ég bara spyr, hver heldur það í alvöru ?
Nei það á að stinga allri þessari rannsóknarnefnd í steininn og láta þetta fólk endurskrifa Litlu gulu hænuna.
Eiki minn það er rétt hjá þér að skrifa þina eigin höfuðlausn, það gerir það víst enginn fyrir þig.
Bestu kveðjur.
Magnea,