30.7.2012 | 12:17
Kæri Eiður.
Ég er nú
aldeilis hissa á þessu nöldri í þér Eiður minn út í þennan tekjusnepil."nag nag".
Auðvitað
og augljóslega eru mótmæli íhaldsins út í snepilinn vegna minnimáttarkendar
fyrrverandi borgarfulltrúa, sem skammast sín fyrir að hafa ekki nema 400þúsund
spírur á mánuði, meðan Georg Bjarnfreðarson sem nú um stundir gegnir nafninu
Jón Gnarr er með tæpar 1200spírur, yes".
Svo á hinum enda Eiður minn eru kallar eins og þú og Davíð sem finnst að þið eigið
skilið að fá þessa aura frá okkur,og finnst að ekki neinum komi við hvað þið fáið í
ellinni og hvaðan þeir koma, leyndó leyndó Já"
En bara til að hressa uppá minnið Eiður minn þá færðu þessa aura frá okkur, þessum
háttvirtu kjósendum, fyrir þær sakir að þú varst einu sinni gerfikrati sem blekktir okkur kjósendur.
Þú varst svo sem ekki einn um það því ekkert hefur breyst frá því þú varst upp á þitt besta í pólitíkinni.
En elsku Eiður minn þú átt samúð mína alla út af þessum tekjusnepli. Ég var nærri búinn
að gleyma þeim félögunum Dabba og Júlla borgó, en þeir eiga samúð mína líka.
Bless Eiður
Magnea
24.7.2012 | 08:23
Kæri Hannes.
Það er ekki að spyrja að DV-kommunum. Nú eru þeir búnir
að sniffa einhvern leyniklúbb, sem þeir halda fram að þú sért forsprakki að, yes the forsprakk".
Þessir öfundarpúkar eru bara svekktir yfir því að þeim
datt þetta ekki sjálfum í hug á undan ykkur, yes to late for them".
Svo halda þeir því fram að þið AB félagarnir hafið ekkert
vit á frjálshyggjunni, svei þeim bara yes svei them all".
Hverjir ættu svo sem að hafa vit á henni ? ekki voru það
þeir sem settu allt á hinn endann, og ekki var það ykkar túlkun á
Fridmennskunni ó nei nei.
Það er öllum ljóst sem eru með gleraugu að það var
helvítinu honum Steingrími að kenna hvernig Fridmennskan setti allt á hinn
endann. who else I simply ask"?
Gott hjá ykkur að setja upp þennan rannsóknarklúbb, tími
til kominn að rannsaka fjárfrelsið, þótt fyrr hafi verið."yes erlier" segi ég
bara.
Hvað með það þó góðviljaðir útgerðarmenn víki að ykkur
einhverjum aurum? Hverjum kemur það svo sem við? Það kostar sitt að kaupa
blýanta og blöð nú til dags ég segi ekki meir. Þessi öfund leiðindapúkanna út í
ykkur og útgerðina er bara óþolandi nag. yes nagnagnag".
Flott hjá ykkur Hannes minn að nota AB gamla sem greni
fyrir þessar rannsóknir. yes I like it"
Engar smá kanónur sem stjórna rannsóknunum Gísli, Jónas
og Jónmundur allir valinnkunnir menn vanir hverskyns rannsóknum bæði í bönkum
og bæjarstjórnum.Hannes minn ég er ekki neinu stuði eftir að ég frétti af
þessum rannsóknarklúbbi, en ef ég næ vopnum mínum aftur eins og einhversagði þá
sendi ég þér línu."yes send you a line".
Bestu kveðjur
Magnea
1.7.2012 | 16:10
Kæra Ólina
Ég sá í DV að
þú ert farin að leika með litaspjöldin aftur. the color card"
Þú gafst eimingja Óla gult spjald ég veit ekki fyrir hvað eiginlega, en hann verður áræðanlega ánægður
með það þótt hann hefði frekar viljað blátt spjald.
Þetta er lauk rétt hjá þér ólína mín nema hvað þú áttir að reikna með kjósendum í EB sem eru
einhverjar milljónir þá hefðir þú fengið sanna mynd á fylgi Óla. Einhverja núll
komma núll eitthvað svo þetta er augljóslega rautt spjald en ekki gult. Svo var
hann áræðanlega rangstæður í þokkabót og ætti að dæma á hann víti að auki.
Þá gæti Þóran þín staðið uppi sem ótvíræður sigurvegari og flutt á Bessó strax eftir helgi. Þar
er nú aldeilis hægt að brjóta blöð við stóra borðstofuborðið. Stjórnmálasagan
verður þá margbrotinn af henni Þóru þinni. yes multi broken".
Ef þú finnur fleiri spjöld sama með hvaða lit, sendu mér þá línu lambið mitt.
Þín Magnea
1.7.2012 | 11:47
Kæra Dorit
Mikið líður mér nú vel í dag yfir úrslitum forseta þú veist. Það voru nú bara ekki allir
sem áttuðu sig á þessum atkvæðaseðlum. Það stóð hvergi hvar ætti að setja exið,
hvort það átti að setja það fyrir framan, ofan, neðan eða aftan, ég er bara gáttuð
á þessu kæruleysi þessara sem ráða þessu að láta ekki vita um svona atriði. Yes
careless pepole I say".
Það þarf því enginn að vera hissa yfir því að það tók tímann fyrir þig að finna út úr þessu
þarna bakvið tjaldið á Álftanesinu, svo voru þetta svo mörg nöfn sem voru á blaðinu ég verð að játa það fyrir þér að ég var í mesta basli sjálf með að finna út úr því hvernig og hvern ég ætti að
kjósa.
Það bætti ekki úr skák að þurfa að hlusta á gamla manninn bakvið tjaldið við liðina sem
staulaðist fram úr nöfnunum og hugsaði upphátt jafnóðum og hann las:
Andrea hver er það nú? Já þessi sæta sem er að hjálpa fólkinu, nei ekki hana.
Best að lesa meira.
Ari er það ekki þessi hraunmaður? nei hann var alltaf með svo vont veður á stöð tvö.
Hannes það er sá sem talar eins og hann komi frá útlöndum, ábyggilega ágætur hrossabóndi,
en nei ekki hann á Bessó. no Besso"
Herdís það er sko skutla í lagi, gaman væri að eiga við hana orð svona prívat bakvið
kókkassa, nei annars, ekki hana á Bessó.
Ólafur,þetta nafn hef ég heyrt einhversstaðar áður. Já nú man ég, er hann ekki bóndi
einhversstaðar? Athuga það betur. Er það ekki hann sem er giftur þessari
útlensku sem ryksugar á Bessó? Það er nú ekki amalegt að hafa hana áfram á
nesinu maður lifandi.
Þóra, er hún ekki ólétt ennþá ? Nei ekki hana þá er enginn til að spyrja í útsvari næsta
vetur.
Svona tautaði gamli maðurinn svo allir heyrðu. Einhver sem sat við borð og skoðaði
ökuskírteinin reyndi að sussa á gamla manninn en ekkert dugði. Hann bara
kláraði þessa þulu sína og spurði svo út í loftið, á að setja kross yfir þann
sem maður vill?
Svona var þetta nú Dorit mín.
Ég skrifa þér fljótlega aftur mín kæra, mig vantar nefnilega uppskriftina af súpunni sem þú sagðir frá á elliheimilinu.
Þín einlæga
Magnea.