12.9.2011 | 09:09
Kæri Nubo.
6.9.2011 | 12:13
Kæri strætó
En ég skil ekki alveg hvernig töfrabrögðum þú beitir til að ná þessum gróða. Ég sá það í fréttablaðinu að hagnaðurinn hefði getað orðið miklu-miklu meiri ef færra fólk hefði farið með þér. Þeim mun færri farþegar þeim mun meiri hagnaður, og minni kostnaður. Það er ekkert nema tómt vesen og kostnaður af þessu helvítis pakki sem riðst ínn í vagnana þína strætó minn. Hvernig væri að minnka vagnana og fjölga ferðum, kæmi það ekki svaka vel út ? ég bara spyr.
Ef rétt er segir þú strætó minn að meðalfargjald sé 100 krónur, en þyrfti að vera 400 krónur svo eitthvert vit væri í rekstrinum.
Síðast þegar ég tók bensín kostaði hver lítri 226,50 krónur. Á einum lítra er hægt með góðu móti að ferðast 10 kílómetra. Ein rispa í bæinn kostar 2 lírta sem sagt 453 krónur. Fyrir tvo kostar rispan í bæinn með strætó á venjulegu fargjaldi ( 350x 4= )1.400 krónur. Eftir óskahækkun strætó (400 krónur á ferð) kostar rispan 1.600 fyrir tvo.
Hvaða vit er í að fara í strætó ? ég bara spyr ? Strætó bara tapar meira ef fólk asnast í hann.
Kveðja
Magnea
1.9.2011 | 11:36
Kæru VG
Það nær ekki nokkurri átt að hleypa einhverjum Kínverjum inn í landið, maður veit aldrei hvenær þeir springa framan í okkur. Yes" Það á alltaf að byrja á að segja nei ef einhverjir útlendingar vilja fjárfesta hér hjá okkur svo á að segja nei nei nei. Þessi Kíverji ætlar áræðanlega að smíða kjarnorkusprengjur á Grímsstöðum eða einhver önnur kjarnorkuvopn. Eða setja upp herstöð til að ógna Japan, ég hef það fyrir satt, heyrði þetta á útvarpi sögu yes". Holurnar í golfvellinum eru bara byssuhlaup og ekkert annað, Hvað haldið að hægt sé að spila golf þarna norðurfrá, ef til vill nokkra tíma á ári. Þetta er bara yfirskin og ekkert annað.
Auðvitað verðum við að laða til okkar erlent fjármagn. Kínverskt er ekker verra en hvað annað. Auðvitað eru þetta dollarar en ekki juan eða havð það nú heitir þessar kíversku krónur. Hvað kemur það málinu við þótt einhverjir kívnerjar eigi torfusneppla á fjöllum ? ég bara spyr simply ask" Ekki fara kínverjarnir með torfurnar úr landi þótt þeir reiðist okkur eða hvað ?. Ekki heldur og þaðan af síður fara þeir úr landi fimm stjörnu steypuklumpa. Ó nei ekki aldeilis.
Hugsa sér milljarða frá Kína fyrir eina lopapeysu, maður lifandi það gerist ekki betra. Handprjónasambandið ætti að hugsa sér gott til glóðarinnar og gefa í. Gefa lopapeysur í allar áttir í von um að einhverjir millarðar skili sér til til okkar. Yes man".
Elsku VG verið á móti öllu sem ykkur er boðið, svona til að byrja með. Ég treysti ykkur til að hrista af ykkur allar erlendar fjárfestingar. Áfram VG
Bestu kveðjur
Magnea
27.8.2011 | 17:54
Kæri Þór Saari..


Þín Magnea.

25.8.2011 | 11:35
Kæri Þorvaldur.
Það er ekki að spyrja að öfundinni hjá ykkur lúserunum. Hvað með það þótt elítan fái bestu sætin í Hörpunni. Hvað með það þótt elítan fái smá skrens með einhverri eldingu út á flóann til að horfa á flugeld ég bara spyr ? Það er svo sem ekkert nýtt. Ég ætla bara að segja þér það Danni minn að elítan á líka frátekna bedda á Háskóla-hátækni hótelonum í Fossvogi og Hringbraut, svona in case aldrei að vita nema einhver úr elítunni fái flensu eða magakveisu.
Ég bara skil ekki þetta eilífa nöldur í ykkur Möggu Tryggva út í hana Jóku. Jóka er verðtryggð eins og annað gott fólk í Samfylkingunni yes man Því skyldi hún vilja verðtrygginguna burt ég bara spyr no way "
Ég hélt að ykkur Möggu væri orðið ljóst að allt þetta hrun og vesen með heilbrigðisruglið er honum Steingrími að kenna, hverjum svo sem öðrum ? Svo hækkar hann og hækkar skattana á ykkur lúserana svo elítan geti flatmagað og sleikt rjómann ofan af þjóðarkökunni who else".
Flottur diskókubburinn við höfnina þessi með flóttaleiðina út í sjó. Danni minn hvernig er uppskriftin af kökunni sem þá bakaðir fyrir fúna ? Ég þarf endilega að baka eitthað annað en vandræði á næstunni.
Bless elsku drengurinn minn og varaðu þig á helvítis kommunum.
Þín Magnea.
29.6.2011 | 08:59
Kæri Davíð
Mikið er ég sammála þér, auðvitað eins og þú bendir á er þetta blaður í Jóhönnu ekkert annað en ómerikegt yfirklór. Henni væri nær að hlusta á þig og Styrmi, frekar en Össa.
Auðvitað er alveg sama hvað Steigrímur puðar og puðar hann er í kviksyndi sem hann æddi sjálfur út í, enginn bað hann um það. Auðvitað er ástandið honum að kenna og engum öðrum fokk him. Engum skyldi detta í hug að ástandið í þjóðfélaginu sé neinum öðrum að kenna. Alla vega ekki í dag.
Það er alveg óþarfi Davíð minn að mynnast á frjálshyggjuna ykkar Hannesar þjófs í þessu. Það var ekki ykkur að kenna þótt bankarnir væru gefnir vildarvinum þínum og Halldórs Ásgrímssonar. Ekki áttuð þið neinn þátt í því. Eg er sannfærð um að það var Steingrímur sem gaf bankana, Símann og tryggingarfélögin vinum ykkar Halldórs. Svo heldur hann að þetta sé ekki sér að kenna hvernig ástandið er, svei bara Steingrímur skammastu þín shame on you.
Davíð minn haltu áfram á þessari braut þá losnum við við Grímsa og Jóku í næstu kosningum. Eina vitið fyrir þessa voluðu þjóð væri að kjósa þig og þitt fólk. Þá verður hægt að bæta fyrir bullið í þeim hjúum. Bið að heilsa Staksteinum.
Kveðja Magnea
16.5.2011 | 12:58
Kæra Harpa.
Nú ertu risin úr djúpinu og gnæfir yfir höfninni og allri menningunni á Íslandi. Svei þeim sem halda því fram að þú sért óþörf og ekki annað en baggi á íslensku þjóðinni. asheime them all"
Þetta pakk sem ekki kann að meta þig er bara öfundsjúkt pakk sem segir alltaf nei við öllu nýju.
Hvað með það þótt þetta öfundsjúka finni að því að þurfa borga brúsann þótt það vilji ekki notast við þig . Þú ert ekki nein mella ónei ekki aldeilis, þó það kosti sitt að njóta þín. no way"
Þetta er bara öfund vegna þess að það fékk ekki boðsmiða á þig Harpa mín. Bjöggi gjaldþrota fékk boðsmiða ásamt Óla Bessastaða sá ég í einhverju blaði. Ekki amalegt að hjóta þín í þeim félagsskap ó... ekki aldeilis. Svo voru þarna fleiri boðsgestir sem ekki er sagt frá, en tunnuhljómsveitin spilaði við innganginn fyrir boðsgesti, við misjafnar undirtektir. Yes". Þótt verkið væri alíslenskt var þess ekki getið hver væri höfundur þess. Mér finnst Harpa mín að þú ættir að bjóða tunnuhljómsveitinni í rauða salinn, og bjóða allri þjóðinni að njóta þessarar þjóðlegu tónlistar sem hún flutti í nepjunni við innganginn. Það er alveg óþarfi að bjóða RUV á staðinn þeir hafa hvort sem ekkert vit á þjóðlegri menningar tónlist, þeir hjá RUV eru bara í ódýru amerískum gaddavírshljómum. yes"
Ég hlakka óstjórnlega til að borga brúsann og alla koteilana næstu áratugina, verst að ég á ekki fyrir strætó í bæinn til að berja þig augum, ég vona bara að það verði birtar fleiri myndir af þér í Mogganum, þar sem þú stendur nakin í höfninni öllum menningarvitum til ánægju og gleði. yes me dear"
Þín einlæga
Magnea
3.4.2011 | 17:08
Kæri Alfreð.



Mikið er þetta satt sem þú sagðir í sjónvarpinu um daginn varðandi Orkuveituna. Auðskilið og skýrt að þið Framsóknarmenn komuð ekki nálægt skuldsetningu Orkuveitunnar no way" segi ég bara. Auðvitað er þetta allt saman helv.... honum Jóni Gnarra að kenna all of it". Svo dirfist hann að hækka gjöldin fyrir vatssopann upp úr öllu valdi, það á bara að drekkja okkur í bæði heitu og köldu vatni svei mér þá og líka í skuldum Orkuveitunnar . Svo boðar hann Gnarri enn frekari hækkun á sopanum og rafmagninu með. Er maðurinn í stuði eða hvað ?
Nei Alfreð minn, þeir sem kenna þér og þínu fólki um hvernig komið er fyrir Orkuveitunni ættu bara að skammast sín sheim them all". Þetta er bara öfund í þessu pakki, svo skilur það ekki bissness. Auðvitað var sjálfsagt að rækta rækjur og skeljar, það ættu þessir öfundsjúku illpennar að vita, segi ég bara I say". Og Lína Net var tær og skýr snilld, auðvitað er það eðlilegt að kaupa svoleiðis af kunningjum og skoðunarbræðrum hvað annað spyr ég bara ? Okkur bráðvantaði svoleiðis línunet inn á hvert heimili I mean it". Folkið í Reykjavík sem ekki vill svona línunet inn í stofu til sín eru bara bjánar og vitleysingjar, þeir vita ekki hvað þeir fara á mis við stupid fools".
Það ætti bara að draga þessa illpenna alla saman fyrir Hæstarétt og láta réttinn dæma þá ógilda og taka af þeim bæði blöð og blýanta, svo þeir haldi ekki áfram að skrifa eitthvað rugl um þig Alfreð minn og þitt fólk. Þú varst sko hetja okkar höfuðborgarbúa þegar þú og forstjórinn tókuð stöðu með krónunni, það fóru að vísu nokkrar kíló-millur í þetta sem töpuðust, en hvað með það þið tókuð jú stöðu með krónunni.
Svo eru menn eitthvað að röfla um að það sé ekki hlutverk Orkuveitunnar að reka allskyns fyrirtæki og stöðutökur. Þetta er vonlaust pakk allt saman "fock them all".
Jæja Freddi minn ég stend með þér sama hvaða vitleysu þú gerir og sama hvaða bull kemur frá þér, þú ert minn maður " My man".
Kveðja
Magnea
21.3.2011 | 10:52
Kæri Davíð.



Það er naumast Raggi er reiður út í þíg, mér bara blöskrar. Það er bara ekkert að því að búa í glerhúsi eins og hann segir að þú búir í, Bara að hafa óbrjótandi gler í því. Hann má svo kasta grjóti, sandi og möl, það hefur ekkert að segja."no way". Ég er svo sannarlega sammála þér Dabbi minn varðandi þennan Háskóla Íslands, þar eru allir á móti þér varðandi þennan Icesave þrjú samning. yes".
Hvernig er það með hann Hannes okkar Hólmstein, er hann ekki enn í þessum Háskóla ? Getur hann ekki komið viti fyrir í kollunum á þessu pakki sem á að lofsingja samninginn ? I simpy ask". Þetta væri nú allt öðruvísi ef menn hlustuðu á þig Dabbi minn. yes" Ekki er hægt að kenna þér um það hvernig fór með þetta Icsave" ævintýri. Ég veit ekki betur en þú hafið varað við þessu alla tíð meðan þú varst í Seðló. warning warning warning yes" Meira að segja reyndir þú eftir bestu getu, og meira en það að bjarga Landsbankanum sem þú gafst Bjöggunum "yes" voru það ekki björgunaraðgeriðr upp á 300 kíló millur ? ég bara spyr yes simply ask me frend".
Auðvitað voru það ótíndir glæponar frá Baugi sem gerðu þetta allt saman, þeir settu alla banka á hausinn, einir og óstuddir með hjálp skólabræðra þinna úr Háskólanum. fock them all yes".
Kæri Dabbi nú er Gnarri að hóta okkur að fara til Grænhöfðaeyja, Heldur þú ekki að hann þurfi einhverja með sér ? Ég sá það í einhverju óþverrablaði að einhver náhirð væri óánægð með þennan Icesave" þrjú samning. Væri sú hirð ekki sæmandi Gnarranum á þessum grænuhausaeyjum ? Ég bara segi ekki meir. tell no more"
Jægja Dabbi minn þetta verður ekki lengra í bili bless bless" by by yes me dear Dabbi".
Þín einlæga
Magnea.
21.3.2011 | 09:26
Kæri Jón Snorri.


Þetta er nú meira eineltið sem þú verður fyrir þessa dagana. Ég man það svo vel þegar þú laukst prófinu í peningafræðunum og byrjaðir að kenna í súpergaggó á melonum með honum Hansa orðaþjóf.
Hvað er fólk að nöldra yfir einhverjum töppum sem þú seldir og keyptir ? Fékkstu ekki tífalt verð fyrir þá þegar þú seldir þá ? ég bara spyr simply ask" Eru menn virkilega að kvarta yfir því að þú skyldir græða á þessum töppum ? Hvað kemur það málinu við, að þeir pössuðu ekki á flöskurnar ? flöskurnar voru bara ekki með rétta stúta fyrir tappana. Yes me boy".
Hvað á það svo að þýða að tína til einhverja hótelreikninga frá útlöndum ? Auðvitað verður þú eins og við hin að gista einhvers staðar þegar við skreppum út í heim. Simply so". Auðvitað eru þetta persónuleg útgjöld, og hvað með það ? I ask yes". Hver getur verið án síma nú til dags ? svarið er enginn. nobody" Auðvitað er best þegar maður þarf ekki að borga svoleiðis leiðindareikninga sem símareikningarnir eru, öfundarpúkarnir eru eitthvað að fleipra með að þessir leiðindareikningar séu uppá 740.000 . Ég Nonni minn segi bara, svona eiga lektorar og MBA sérfræðingar að kenna sínu fólki, hvað annað ? Hold your striki" eins og Reykhás sagði. yes me boy".
Bíll og ekki bíll, dæmigert fyrir öfundina að tína það til með bílinn, eru þessar druslur nokkurs virði ég bara spyr ? Fyrir mér er þessi sveifla með bílinn algjör snilld, ekki minni snilld en Icseve. Þú ættir að gera þetta að skylduverkefni hjá þeim sem þú ert að MBA-a. yes". Elsku Nonni minn ég bíð spennt eftir því að þú verður próffi í súpergaggó eins og vinur okkar Hansi. yes,yes,yes"
Ég þarf að þjóta núna Nonni minn skrifa þér seinna. Bless bless.
Þín Magnea