Kæri Kristinn

 

Þú færð það nú aldeilis óþvegið í Hvítbókinni. Þú ert bara sagður í stjórnum ótal félaga og framkvæmdasjóri í mörgum þeirra. Svo er laung talning á félögum sem haft er fyrir satt að þú hafir verið í stjórn í, mörg komin á hausinn, en það er svo sem ekki tíundað, og heldur ekkert merkilegt. Er þetta bara ekki dæmigert fyrir öfundsjúkan lýðinn ? Svo eru menn að fleipra með að þú og yndisleg frúin eigið þetta fína hús á Flórída, ég er viss um að þetta er bara sagt til að sverta ykkur hjónin. Það er einnig haft fyrir satt að þú hafir misst allt þitt. Þegar frændi minn missti allt sitt, átti hann hvergi heima eftir að sýsli bar hann úr og ritari sýsla ók burtu á bílnum hans, svo ég trúi ekki þessari draugasögu um þig að þú hafir misst allt þitt, né heldur að eithvert ólíu og bensín svindl sem þú ert sagður ábyrgur fyrir sé satt. Hvað þá að Solla mín hafi eitthvað notað Bjössa og Geira til að fá ríkisborgararétt fyrir gullfallega stúlku utan úr heimi. Nei segi ég það er svo mikið bullað um þig að fjórðipartur væri meira en nóg. Þú hittir sko naglann beint á hausinn, þegar þú sagðir að fólk væri fífl. Það sannaðist svo sannarlega í síðustu kosningum.

Ég bara vona að þið Solla hafið það sem allara best hvort heldur sem er á Íslandi eða í Ameríku. Þetta verður ekki lengra í bili, pósturinn var að koma, skrifa kannski seinna.

Kær kveðja

Magnea


Kæri Björn

 

Ég er nú hálf skúffaður yfir því að þín sé ekki minnst á HVÍTBÓK, er það vegna þess að þú fékkst ekkert fyrir þinn snúð ? Græddir þú virkilega ekkert á útrásinni ? Mér finnst nú að Dabbi og Kjartan hefðu átt að slaka einhverju nammi til þín, eins og þú varst búinn að gera fyrir þá. Ég veit ekki betur en þú hafir komið öllum ættingjum Dabba og vinum til starfa í dómarakerfinu. Helvíti sniðugt að hafa sína menn í dómstólunum þegar taka á í gegn þessa skúrka sem búnir eru að rústa öllu hér á landi. Ég hlakka til að sjá framaní Jón, Jóhannes, Hannes og Pálma og alla hina glæponanna þegar þínir menn taka þá í nefið hahahaha. En auðvitað verður ekki hreyft við okkar mönnum eins og Geira, Dabba, Gerðu og Kjartani svo einhverjir séu nefndir, en af nógu er að taka.

Mannstu þegar ég lagði til að nota Höfðatorgsturninn til að geyma verstu skúrkana í. Þú veist nítjánhæða  turininn sem Eykt byggði fyrir eigið fé. Mér datt í hug mannstu að setja þá í geymslu á sautjándu til nítjándu hæðirnar. Það þarf enga rimla fyrir gluggana. Ef einhver vill endilega flýja út um glugga þá er það í fínu lagi leiðin liggur beint niður 17-19 hæðir, verði honum að góðu. Svo er bara að láta lyfuna ekki ganga lengra en á sextándu kæð. Eina breytingin er að það þarf að setja hlera í staðin fyrir lyftuhurðir og góða hurð fyrir innganginn á 17.hæðina, bara húnn að utanverðu. Útivistarsvæði á þakinu. Er þetta ekki tær snilld ? Þarf ekki að byggja nýtt fangelsi. Þú spurðir hvernig þeir ættu að fá mat. Alveg rétt það er til dæmis hægt að semja við Bæjarins bestu eða Landspítalaeldhúsið. Þeir bara gefa upp bankanúmerið á Tortúla og geta þá pantað hvað sem er, og meira að segja vín með.

Eg þeir vilja dunda sér við eitthvað, þá má láta þá hafa nokkur Mattador spil, en muna að taka helmininn af peningunum burt svo þeir fari ekki á flug í fjárfestingum.

Ég hef þetta ekki lengra Bjössi minn, leitt að þú hafðir ekki tíma til að stofna herinn, en svona er nú þessi pólitík.

Kær kveðja

Þín Megnea.


Kæri Sigurður

 

Það eru allir vondir við þig. En ekki ég elsku Siggi minn. Ég er ekkert að öfundast útí þig þótt þú eigir skuldlaust hús á Valhúsahæð. Allir geta átt skuldlaus hús eins og þú bentir réttilega á um daginn. Formúlan er bara að taka ekki lán, svo einfalt er það nú. Svo eru hælbítarnir eitthvað að segja að þú  hafir keypt smá aðsetur út í London á tíu og hálfa punds-millur , ég segi bara og hvað með það ?. Þegar maður spyr svo hvort þetta séu ekki many monní þá er manni sagt að Siggi minn hefði bætt við tveimur og hálfri punds-millu til að vera alveg öruggur um að fá það. En þið illgjörnu eiturtungur gátuð ekki stillt ykkur um að segja að húsið hafi verið til sölu í mörg ár, en ekki selst. Ætli maður heyri ekki næst að Siggi minn hafi borgað of mikið fyrir kofann ? En það fylgir bílastæði sagði hann.

Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum þegar þú sagðir mér frá honum Dabba og því hvernig hann hafði hótunum við þig út af einhverju uppgjöri í evrum. Hvað á það að þýða eiginlega að blaðra um einhverjar niðurfellingar á ábyrgðum út af lánum til ykkar Heiðars. Þetta var svo sem ekkert, bara nokkir tugir milljarða, og hvað með það segi ég nú barasta. Og hvað á það að þýða að vera að nudda í þér út af  einhverjum sumarbústað sem þú ert að láta byggja fyrir þig ? Ekkert annað en öfund segi ég bara, og hana nú.

Ég verð að fara á klóið núna, skrifa þér kannski nokkrar línur við tækifæri.

Bestu kveðjur

Þín Magnea


Kæri Hannes

 

Það er nú meira sem hamast er á þér. Hvað er þetta hyski eiginlega að meina. Þurfa þeir ekki að halda við húsunum sínum ? mér er spurn. Þeim væri nær að sýna þér vorkunn, að lenda í að kaupa ónýtt hús á 70 millur og þurfa svo að gera við það fyrir tæpar 350 millur. Þú hefur verið blekktur þegar þú keypir þennan kofa. Þarft þú ekki að "súa" þessa fasteignasala ? Það er gert í Ameríku fyrir minni sakir. Hvað eru menn eiginlega að meina þegar verið er að nöldra út í millifærslur milli reikninga í FL eða hvað það nú hét og heitir? Mega menn ekki færa milli reikninga sem þeir eiga sjálfir án þess að spyrja um leyfi ? hvurslags er þetta eiginlega. Svo voru þetta bara smáaurar litlir þrír milljarðar.

Hvurn andskotann eru menn svo að meina með því að gramsa í skartgripakassa frúarinnar ? Voru þeir að leita að ónotuðum bíómiðum eða hvað ? Hverjum dettur eitt augnablik í hug að þú hafir gert eitthvað sem ekki er skothelt fyrir lögunum. Ekki er það lögbrot að kaupa ódýrt og selja svo með hagnaði, hvað þá að kaupa dýrt og selja með tapi. Þetta er tóm öfund og ekkert annað.

Svo er verið að öfundast út í þig fyrir að kærastan eigi nokkrar bíldruslur. Það er áræðanlegt að þetta eru bara verðlausar druslur. Ég bara skil þetta ekki. Svo er verið að blaðra um einhver fyrirtæki sem verið er að gera þessi bílakaup eitthvað vavó. Einátta ehf Tvíátta ehf eða hvað það nú heitir og svo einhver Úranus. Þvílíkt bull. Og hvað kemur svo fólki þetta við eiginlega ?

Það var nú ekki þér að kenna að American Airline bar sig ekki. Þeir höfðu bara ekki dug og þor til að gera eins og þú lagðir til. Það verður seinr sagt um þig elsku Hannes minn að þú hafir ekki fært okkur hagsæld og mörgum já mörgum hagnað og gæfu. Ég held bara að það ætti að erfðabreyta þessu hyski sem er að nöldra út í þig. Og hana hú.

Ég á áræðanlega eftir að skrifa þér aftur, en hafðu það sem allarabest.

Kveðja, Magnea


Kæra Birna.

 

Mikið getur fólkið verið ómerkilegt. Það heldur því fram að þú vitir ekki aura þinna tal. Það blaðrar um einhverjar 180 millur sem það segir að þú hafir ekki tekið eftir að voru í sparibauknum þínum.Svo er verið að segja að fjármála eitthvað eftirlit hafi kíkt í sparibaukinn þinn og ekki séð neitt nema miða sem á stóð eitthvað bull um að kaupa hlutabréf við tækifæri. Sniðugt að kalla sparibaukinn Melkorku, ég þarf að segja barnabörunum þetta þau gætu kallað sína sparibauka einhverjum svona nöfnum, tildæmis Búkollu, Grýlu, Sollu og jafnvel Birnu. Birna mín vonandi er Bensinn í standi, er hann ekki flottur ?. Mér finnst hann samt ekki nógu verðmætur fyrir minn smekk, mætti kosta meira.

Flott flétta hjá þér þetta með bankastjórastöðuna, bara orðin stjóri eftir allt saman.Það eiga áræðanlega margir eftir að öfundast út í þig.

Jæja Birna mín. Hafðu það sem allara best.

Kveðja.

Magnea.


Kæra Gerða

Nú eru spennandi tímar og við eigum bara að nota tækifærið og mennta okkur fyrst við erum ekkert að gera hvort sem er. Allt farið til helvítis og atvinnuleysið aldrei meira.Svo er fólk að kenna ykkur um þetta gegnheilum íslendingum og valinnkunnum sjálfstæðismönnum og konum. Þvílíkt bull, hvað á svona eiginlega að þýða ? ég bara spyr. Ég veit að þú Gerða mín og Geiri Harddi meintuð þetta með að nota kreppuna til að mennta fólkið. Ekki veitir af eins og þeir fáu sem eru menntaðir hafa farið með þjóðina. Engu líkara en ótýndir götustrákar hafi farið með bankamálin hér á landi undanfarin ár.  Ekki dettur mér eitt augnablik í hug að þú og Geiri hafið komið nálægt þessu peningaklúðri.Það var auðvitað eitthvert regluverk frá útlöndum sem stjórnaði þessu öllu saman, meira að segja er mér sagt að regluverkið frá Brussel hafi beinlínis stofnað þessa ísleifsreikninga sem sett hefur okkur á kaldann skuldaklakann. Og maður tali nú ekki um Edss reikningana. Allt er þetta helvítis regluverkinu frá Brussel að kenna. Nú ætlar víst súpergaggó á Melonum að kenna “Ponzi” aðferðina til að rétta við efnahaginn hjá okkur. Það er tími til kominn segi ég bara að þessi súpergaggó fari að kenna eitthvað sem vit er í. Verst að skólarnir geta bara ekki tekið við öllum sem vilja læra. Þeir sem komast ekki að í skólunum geta þó alltént barið potta á Austurvelli, svona þegar veðrið er sæmilegt..Gerða mín þú þarft ekkert að skammast þín þótt pabbi þinn sé bara leikari, það er ekki þér að kenna.

Nú verð ég að hætta. Skrifa þér kannski einhverntíma aftur.

 Kær kveðja elsku Gerða mínÞín Magnea.

Kæri Pálmi.

Enn er verið að bulla tóma steypu um þig. Fólkið segir að þú hafir verið að kaupa og selja sjálfum þér einhver fyrirtæki. Er þetta ekki dæmigert rugl þeirra sem hafa ekkert vit á viðskiptum ? Hvernig hefði fólkið komist til útland undanfarið ár, ef menn eins og þú hefði ekki notið við ? ég bara spyr. Hver nema þú gerðir fátæklingum kleift að ferðast til Köben og London ? Ekki var það ríkið, ó nei það varst þú elsku Pálmi minn og fólk með háleitar hugmyndir um einkarekstur eins og þú og Hansi. Allt þetta bull um að þú hafir hækkað eitthvað verð á flugfélagi frá einni sölu til annarar er bara öfund. Það er heldur ekkert merkilegt við það þótt félag sem þú stjórnar hækki í verði milli ára. Þeir sem áttu það á undan þér stóðu sig nú ekki betur en það að flugfélagið var komið í þrot þegar þú keyptir það og bjargaðir því. Svo er þetta fólk að hneygslast á því að þú eigir einhverja einkaþotu. Og ekki bara það heldur að sætin í henni séu klædd leðri, Þvílík öfund. Hvað heldur fólk eiginlega að það sé ? Auðvitað verður þú að eiga einkaþotu, ekki er hægt að ætlast til þess oð þú ferðist með þessum vélum sem þú bíður fólkinu uppá  Það eru bæði ljótar flugfreyjur og þröngt á milli sætanna í þeim. Hvað er fólk eiginlega að pæla þótt þú eigir Reins, menn skilja ekki að það þarf að komast milli staða á jörðu niðri. Ekki fer þetta sama fólk í strætó út á Keflavíkurvöll þegar það fer til útlanda, ó nei ekki.aldeilis. Elsku Pálmi minn, ég hef þetta ekki lengra í bili, en mikið vildi ég heyra frá þér, svona við tækifæri. Þín einlægaMagnea

Kæri Sigurljón.

Ekkert skil ég í þessu blessaða fólki sem er að nöldra yfir því þótt þú takir smá lífeyrislán til að gera við gluggana heima hjá þér. Það taka jú fleiri lán út á húsin sín en þú.. Þetta er ekkert annað en öfund hjá þessu fólki sem er sífellt nöldrandi yfir velgengni annarra. Þetta blessaða fólk áttar sig bara ekki á því að það eru einhver vandræði merð gjaleyri, svo þér veitist jú erfitt að koma þessum fáu evrum sem þér tókst að skýla fyrir ágangi skattmanns til landsins. Ég skil bara ekkert í þér að vera hér á klakanum á þessum erfiðu tímum. Allir vita best af hverju landið er gjaldþrota. En enginn gerir sér grein fyrir þeirri gæfu sem þjóðin hefur haft af stjórn þinni og fleiri á fjármálum. Hvernig væri komið fyrir okkur ef einhverjir aðrir hefðu stjórnað þessu ? ég bara segi ekki annað. Ég veit að þú gerðir þitt besta til að bjarga okkur frá þessu rugli með ísleifsreikningana í útlöndum, en það var ekki hlustað á þig frekar en hann Dabba minn. Elsku Sigurljón ég vona svo sannarlega að fókið átti sig á þessu og allt verði gott aftur. Kær kveðjaMagnea.

Kæri Geir.

Það er ekki að spyrja að hælbítunum. Komnir í hælana á þér um leið og þú hægir á þér. Mér ofbíður lágkúran í þessu fólki, sem virðist sjálfskipaðir sérfræðingar um efnahagsmál sumir ekki einu sinni stúdentar hvað þá meir.Þú sem ert með þrjár háskólagráður í peningafræðum meira að segja. Hvað er þetta fólk eiginlega að meina ?Þú sem hélst öllum upplýsingum fyrir þig og þína um hrun Íslands enda eins gott að fólkið sem á að borga viti ekki fyrir hvað það á borga. Þér tókst elsku Geir minn að halda þjóðinni frá sannleikanum í meira en eitt ár fyrir hrun, geri aðrir betur. Bréfið sem þú sendir til vinaþjóða okkar  fyrsta desember er algjör snilld. Það sjá allir að það voru einhverjir ljótir kallar í útlöndum sem ullu því að bankarnir þrír í einkaeign fóru á hausinn. Þíð Davíð vinur minn höfðuð jú varað við þessu í langann tíma eins og við vitum öll.En hælbítarnir halda áfram að níða þig niður fársjúkan manninn fyrir eitthvern fellibil frá útlöndum sem skall á fjármálakerfi landssins og setti þessa einkabanka á hausinn. Eins og þú segir réttilega þá eigum við ekki að borga fyrir það.Mikið er ég feginn því að þú sért ekki lengur ábyrgur fyrir þessari vitleysu, nóg er samt á þig lagt. Gott hjá þér að láta gæsalappa taka við flokknum.Þessi D. Strauss-Kahn bankamaður sem heldur því fram að þú hafir brugðist rangt við hruninu, er bara einn af hælbítunum og hefur ekkert vit á íslensku hag- og bankakerfi. Enda er maðurinn bara framkvæmdastjóri Alþjóðagjaleyrissjóðsins.Svona menn eiga bara að vera heima hjá sér og ekkert að vera að skipta sér af okkur.

En hvað um það, það er af mörgu að taka Geir minn. Ég skrifa þér kannski seinna þegar betur árar.

 

Kær kveðja.

 Þín Magnea

Kæri Halldór.

Mikið sakna ég þín. Það barasta heyrist ekkert frá þér. Hvar ertu eiginlega ?Ég minnist þess alltaf þegar þú og hann Davíð minn leystuð bankana úr álögum ríkisins.Þá fyrst fóru peningarnir að vinna fyrir okkur, áður voru þeir dauðir í lokuðum hvelfingum bankanna. Það má heldur ekki gleyma gæfusporinu sem stigð var af þér þegar þú settir fiskinn undir kvótann. Eins og Hansi sagði, fiskurinn er einskis virði nema hægt sé að selja hann óveiddan. Það má heldur ekki gleyma því hvernig þú hækkaðir lánin á húsunum okkar, það er eitthvað mesta gæfuspor sem stigið hefur verið í þágu fólksins.Nú eiga allir húseignir sem tvöfölduðust í verði á örfáum mánuðum. Þótt þær séu óseljanlegar nú um stundir er þó ánægjulegt að sjá hve verðmætið er mikið. Svo fáum við líka að leggja meira til samfélagsins í hærri fasteignagjöldum. En það er eins og hjá Davíð, þú varaðir við þessu og reyndir hvað þú gast til að koma í veg fyrir þetta, en það var ekki hlustað á þig. Því fór sem fór. Það var heldur ekki þér að kenna að óráðsíumenn komust til valda í baunkunum. Þið Davíð vöruðuð við allan tímann. Ég skil þig vel að hafa farið til útlanda þar sem hlustað er á þig og látið hina frammarana um að stjórna.Elsku besti Dóri ég hef þetta ekki lengra í þetta skiptið. Vonandi hefurðu það sem allra best í útlandinu. Þín Magnea.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband