24.7.2007 | 16:02
Enn eru dásamlegir tímar
Nú er annar kapituli í Lúkasar-(Guð)spjalli kominn á þrykk. Lúkas sem sendur var í eyðimörk Hlíðarfjalls, til huleiðslu, er nú kominn til byggða aftur. Vandamálið er að þýða á okkar mál það sem Lúkas hefur að segja eftir hugleisluna í fjallinu.
Nú hafa borist fréttir frá Noregi af prinsessu sem kann að tala við hesta-engla og aðra engla. Hún er um það bil að stofna skóla (Astarte Education) til að kenna okkur hinum að tala við engla. Spurningin er hvort hægt væri að nýta þetta á einhvern hátt til að ræða við Lúkas um hugleiðingar hans í fjallinu ofanvið Akureyri.
21.7.2007 | 16:43
Það eru dásamlegir tímar núna.
Utanríkisráðherra sem er að vísu frú Ingibjörg, var boðið til hádegisverðar í Palestínu. Hún greiddi að vísu 28 millur fyrir bitann, og fyrir desertinn var greitt með óútfylltri ávísun stílaða á kvennamiðstöð palenstísku flóttamannabúðanna, gott hjá henni.
Fyrir norðan er verið að skrifa nýtt Lúkasar-(guð)spjall. Þetta eru spannandi dæmisögur um góða menn og vonda menn, og hvernig eymingja Lúkasi var ekki misþyrmt, en rekin frá Akureyri upp í fjall.
Við erum svo svaka heppin að heill her manna og kvenna hefur tekið að sér að bjarga Íslandi. Fullt af fyrirtækjum hafa fengið á sig borða með hvatningarorðum um að nota ekki eitthvað ál eða stál eða eitthvað. Orkuveitan fékk meira að segja borða fyrir að framleiða vopn. Það er víst heitt vatn á sprautubrúsum, stórhættulegt segja björgunarmenn Íslands og vilja hefja viðræður við OR um heitavatnssiðgæði m.m.
Svo er annar her að bjarga Kópavoginum frá einræði. Þeir hermenn hafa líka hengt upp borða til heiðurs Gunnsa sem finnst gott að búa í Kópavogi og veit ekki til þess að hermenn lýðræðisins hafi talað beint við sig. Það er ekkert að marka þá sem tala við mann á ská segir Gunnsi.
Bármann í Glit-group söng sitt síðasta og er farinn upp í Skorradal að grafa sér holu.
21.7.2007 | 15:17
Vopnaleitar ferðalög nútímans
Þegar ég fór í sjötta skiptið á árinu gegnum vopnaleit, í það skipti á Kastrupfluvelli féllu buxurnar niður á hæla þegar mér var skipað að taka af mér beltið sem ég nota einmitt til að halda þeim upp um mig.
Þá fór ég að velta fyrir mér hverjum ég mætti þakka þessa nákvæmu vopnaleit. Jú ég komst að þeirri niðurstöðu að við ferðalangar sem ferðumst milli landa á vængjum flugsins ættum þessari vopnaleit að þakka einhverjum Bin Laden sem kvað vera að vesenast með sprengur og drápstól á vegum einhvers spámanns sem átti heima í mið-austurlöndum fyrir löngu síðan. Þessi Bin Laden hefur um sig hirð hirðingj sem hann hefur talið trú um að nauðsynlegt sé að fækka fólki sem ekki er í þessum söfnuði sem hann heldur svo mikið uppá og heitir víst múslima- eða íslam eða eitthvað.
Sem sagt þessir höfðingjar bjóða rétttrúuðum börnum og unglingum sem vart eru orðin kynþroska sjö hreinum meyjum þegar þau koma til himnaríkis þar sem ALLAH á víst heima, sennilega í næsta húsi við GUÐ almáttugan, ef þau vilji gjöra svo vel að girða sig sprengjubelti og sprengja sig og nærstadda í loft upp við hentugt tækifæri.
Þar sem báðir eiga heima í Himraríki og sennilega hvor í næsta húsi við hinn. Væri ef til vill ástæða að þeir ræddust við og kæmu sér saman um það hverjir ættu að byggja þessa jörð okkar og með hvaða skilmálum. Annars kom þetta fram í hugan þegar sagt var frá einni sprengingunni til viðbótar, þar sem nokkrir tugir voru sendir ýmist til Guðs eða Allah.
Almáttugi, A - - - - sem öllu ræður, .iq.iq.iq
Því léstu barnið lifa ? .iq.iq
Almáttugi, miskunsami A - - - - sem öllu ræður, .iq.iq.iq
Því berjast börn þín ? .iq.iq
Almáttugi, miskunsami, mildi A - - - - sem öllu ræður, .iq.iq.iq
Því skapaðir þú vonsku mannanna ? .iq.iq
Almáttugi, A - - - - skapari alls, .ir.ir.ir
Því skapar þú vanskaplinga ? .ir.ir
Almáttugi, A - - - - skapari lífs og jarðar, sem öllu ræður, ir.ir.ir
Því skapaðir þú ólæknandi sjúkdóma ? .ir.ir
Almáttugi, allsráðandi A - - - - skapari alls, .pk.pk.pk
Því er hann hommi ? .pk.pk
Almáttugi, algóði réttláti og miskunsami A - - - - , .af.af.af
því er pabbi kommi ? .af.af
Almáttugi, algóði miskunsami A - - - - sem öllu ræður, .islam.islam.islam
því á ég að trúa ? .islam.islam
Maður má ekki einu sinni hafa með sér brjósbirtu í flugferðir fyrir þessum Allah. Eða hvað hann nú heitir.
20.7.2007 | 17:07
ENERGI ævintýri fyrir framtíðarbörn 8 af 8
Skál. Meira koníak takk.
Búið í bili, amen20.7.2007 | 10:41
ENERGI ævintýri fyrir framtíðarbörn 7 af 8
Þú segir það segir Bármann, en gætum við kannski keypt þessa rellu saman ? það væri ef til vill ekki svo vitlaust fyrir okkur tvo að eiga relluna saman ? Hugsum málið segir Kalli.
Skál, þjónn meira koníak.19.7.2007 | 14:56
ENERGI ævintýri fyrir framtíðarbörn 6 af 8
18.7.2007 | 14:15
ENERGI ævintýri fyrir framtíðarbörn 5 af 8
18.7.2007 | 09:55
ENERGI ævintýri fyrir framtíðarbörn 4 af 8
17.7.2007 | 21:07
ENERGI ævintýri fyrir framtíðarbörn 3 af 8
17.7.2007 | 10:04