Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hve glöð getum við verið

 

Ljósmæður gengisfelldu lækna !!

Hjúkkur hækkuðu launavísitöluns um 0.5% !!

Ljósmæður rústuðu launum allra landsmanna !!

Greiðslubyrði 5500 íbúðalána þyngist um 20 % á næsta ári. Segir Edda Rós á greiningasviði Landsbankans. !!

Halldór bankastjóri Landsbankans komst að þeirri stórmerku niðurstöðu að greiðslubyrði íbúðalána stórhækkuðu. En það er fólkinu sem tók lánin að kenna segir Halldór og sígur upp í nefið. Bankinn er þinn gæfu smiður auglýsti bankinn fyrir um ári síðan. !!!

Edda Rós greiningardeild Landsbankans segir, veiking krónunnar mun ekki skila sér í verðlagið, ( nema kannski smá). !!

Krónan verður veik áfram segir Edda Rós greinir Landsbankans. !!

Eiríkur Seðlabankastjóri segir bankann ekki hafa upplýsingar um vegna hvers órói sé í kringum krónuna. Villi atvinnulífsins segir að þetta sé kananum að kenna. Óli Ísleifs segir þetta sagði ég alltaf, en enginn tók mark á mér. !!

Bjöggi ráðherra segir að stjórnvöld verða að bregðast við í peningamálum !!

Sjeik Mohammed er í útrás heiman frá sér. Kaupir banka og kæligeymslur á Íslandi!!

Kaninn setur verðmiða á klúðrið og  kaupir það síðan !!

Viggó Landsbankans segir að enginn deyi úr verðbólgu, fuglaflennsan og svartidauði séu miklu miklu hættulegri lífi manna, og bætir við hvað er að óttast ?!!

Siggi KB-spámaður sagði að allt væri að fara til fjandans árið 2004. Bráðnauðsynlegt væri að fara út í veikingu krónunnar. Menn ættu að borga lánin sín í útlöndum hið snarasta. Þá var gengisvísitalan 110 nú er hún 180 bráðum 200..

En Back tókst að sameina himinn og jörð segir Gunni Kvaran. Gætum við ekki fengið þennan Back til að sameina krónuna og evruna ? !!

Samgöngumöllerinn segir að það þurfi að fara að ræða um sundabraut hábrú lágbrú göng. Allt verði þetta að skoða og fá heilstætt mat svo hægt sé að tefja þetta aðeins meira.


Evru-verkfræðingurinn

 

Hvernig verður þetta með evruna Halldór minn? Hvað áttu við ? Ég meina þegar skift verður á handónýtri krónunni og þessum dásamlegu evrum, á hvaða gengi verður það eiginlega ? Einn á móti 500 kannske eða hvað ? Núna er það einn á móti 125.

Það verður fróðlegt að sjá írafárið ef ákveðið verður að henda krónunni út í hafsauga.

Þá verður handagangur í öskjunni, að koma öllum krónunum sem ekki eru til þ.e.a.s ekki til á pappírunum sem skattmann hefur til að lesa á kvöldin. Það skeði á Spáni þegar Þjóðverjarnir áttuðu sig á að sumir áttu fleiri mörk er skattmann hafði hugmynd um. Þá ruku þeir til og stofnuðu byggingarfélög á Spáni og fleiri löndum og dælu þangað mörkum við mikinn fögnuð Spánverja og þeirra sem voru svo heppnir að verða fyrir vali þeirra þýsku, þvílíkar byggingarframkvæmdir maður lifandi.

Heldur þú ekki Dóri minn að nú sé möguleiki á einu kvótakerfinu til ? Hugsum okkur að dýralæknirinn í Hafnarfirði og kallinn í Svartakastala ásamt einhverjum fleiri höfðingjum ákvæðu, að við Dóri minn og þessi svokallaði almenningur fái evruna á 500 kall stykkið, en útvaldir á segjum bara 100 kall stykkið. Hvað ertu að meina ? Nú að evru-kvótakallarnir fá evruna á 100 kall en við á 500 kall skilurðu sko.

Þú meinar, en hvernig á að skýra það ? Jú sjáðu til Dóri minn. Þeir segja bara að þetta sé svo mikið magn sem evru-kvótakarlarnir séu að kaupa að ekki sé nema sanngjarnt að þeir fái verulegan afslátt. Svo hafi þeir líka verið að hugsa um að kaupa þegar evran kostaði 100 kall svo það sé ekki nema sanngjarnt að selja þeim á því verði.

Þetta eru jú máttarstólpar viðskipta á Íslandi má svo fylgja með í skýringunum, enda sett hvert fyrirtækið á fætur öðru á hausinn á undanförnum árum.

Ég held að þú sért rugluð Magnea mín, ég meina það.


Sprisjóðirnir

 

Þau Magnea og Bubbi sitja á barnum í Norræmu.

Þetta með sparisjóðina segir Magnea er athyglisvert. Upphaflega stofnuðu hópur íbúa á tiltlölulega litlu og oft afmörkuðu svæði sparisjóð. Íbúarnir lögðu svo sparifé sitt í sparisjóðinn ásamt þeim aurum sem þeir þurftu ekki að nota í augnablikinu. Tilgangur sparisjóðanna var að lána íbúum og þeim sem höfðu viðskipti við sjóðinn peninga með sanngjörnum vöxtum, ásamt því að ávaxta fé þeirra á öruggan hátt.

Þetta var gert vegna þess að stóru ríkisbankarnir sem stjórnað var af pólitískum gæðingum þeirra flokka sem voru við stjórn hverju sinni, með mis vel uppalda bankastjóra sem réðu því hver fékk lán og hver ekki.

Hverjir fengu lán og hverjir ekki stjórnaðist af kunningsskap og hvar menn voru í pólitík (klíka).

Nú er svo komið fyrir sparisjóðunum að þeir eru á hausnum, en af hverju er það ? Jú stórnendur þeirra mistu sjónar á tilgangi sjóðanna og ætluðu að slá sig til fjár-riddara.

Til þess notuðu þeir inneing viðskiptavina sjóðanna til að spila póker út í heimi og innanlands.

Án fyrirhyggju settust stjórnendur sjóðanna við spilaborðið þar sem fyrir voru aðrir gamblarar eins og stjórnendur Fláráðsgrúpp, Ísbanka og fleiri fyrirtækja. Spurðu þeir nokkurn um leyfi til að spila póker fyrir sparifé íbúanna sem áttu sitt fé í sjóðunum ? Nei áræðanlega ekki. Svo standa þeir bara upp þegar allt er í rúst og segja, það er tími til fyrir mig að breyta til bless bless.

Þannig er þetta nú Bubbi minn.

Þú segir


Islamistar allra landa sameinist

 

Islamistar allra landa sameinist. Sýnið trúleysingjunum enga miskunn.

Auga ALLAH

 

" Við verðum að hrella og skelfa bölvaða heiðingjana.

Fyrir að voga sér að segja að Islam sé ofbeldissinnaður og óumburðarlindur. "

 Auga ALLAH

Þannig er þetta nú í pottin búið Magnea mín. Þessi mynd skýrir markt sem er nú í gangi í heiminum. Islamistarnir eru markvisst að þrengja að þeim þjóðfélögum sem hafa skotið skjólshúsi yfir þá undanfarna áratugi.

Danir vita þetta og eru ekki allir þar á bæ hrifnir. Það sem hefur gerst er að margar Múslimskar fjölskyldur sem fengu danskt ríkisfang og þar með atvinnuleyfi, hafa engan áhuga á að vinna, en lifa á almannatryggingum, að sögn vegna túngumála erfiðleika. Börnin sem fæðast í Danmörku fá sjálfkrafa danskan ríkisborgararétt, hafi foreldrarnir hann, en þegar þau komast á skólaaldur eru þau send í trúarskóla í einhverju múslimalandi. Þau koma svo til Danmerkur tíu til fimmtán árum seinna með maka, sem öðlast danskt ríkisfang þar sem viðkomandi er gift Dana. Nú er að koma upp þriðja kynslóð Islamista í Danmörku sem ekki talat stakt orð í Dönsku

Hvorki þeir sem upprunalega komu til Danmerkur né börn þeirra sem fóru í trúarskóla hafa fyrir því að læra Dönsku, , hvað þá heldur makinn sem kom harðgiftur til Danmerkur. Þannig verður til samfélagshópur sem talar ekki Dönsku vinnur ekki á almennum markaði, og hefur því nægan tíma til að sinna köllun sinni og Islamistma.

Það er deginum ljósara að það sem kennt er í trúarskólum Múslima er Islamismi sem gengur meðal annars út á það, að allir sem ekki eru Islamistar eru óvinir Íslams og réttdræpir að "sharilögum" svo einfalt er þetta nú Magnea mín.

Á einhverjum tímapunkti verða þeir nógu fjölmennir til að yfirtaka stjórn þjóðfélagsins, þá liggja Danir í því.

Heldur þú Bubbi minn að þetta eigi eftir að verða svona í Sviss ? Veit ekki Magnea mín þið Svissararnir verðið að gæta ykkar á þessu annars fer fyrir ykkur eins og Dönum.

Ég sá það í einhverju blaði að í Dubai eru leynilöggur á sveimi á baðströndunum. Ef einhver konan fækkar fötum meira en þeim finnst tilhlíðilegt eru þær umsvifalaust handteknar og varpað í steininn. Svo eru þær sektaðar og sagt að þær séu í Múslimalandi og þær verði að haga sér samkvæmt því. Engin afsökun að vera ferðamaður frá norðlægari löndum þar sem fólki er frjálst að fækka fötum, þar sem eina reglan er að hafa pjötlu fyrir því allra heilagasta, nema á þeim stöðum sem kallaðar eru nektarnýlendur.

En hvað með þegar múslimarnir koma til okkar, þá segja þeir einfaldlega. Ég er Múslimi og haga mér samkvæmt því og haldið þið svo bara kjafti og gerið eins og ég vil. Til dæmis vil ég ekki sjá svínakjöt á matseðlinum svo eitthvað sé nefnt og maður nú tali ekki um bjór og vín. Svona er þetta nú Magnea mín.

Hvað með fólkið sem kerlingin með handklæðið á hausnum er að flytja inn, eru það ekki Múslimar ? Jú og sannaðu til það fólk á eftir að gera kröfur á okkur um breytingar á siðum. Þú getur bókað að þetta fólk gerir kröfur til okkar um að við aðlögum okkur að þeirra siðum, akkúrat eins og þeir gera í Danmörku.

Já hérna Bubbi minn ég held bara að ég staldri ekkert við í Danmörku en drífi mig til Sviss. 


Höfuðborgarsvæðið.

 

Nemar utan af landi fá ekki lengur frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu, Garðbæingar þurfa líka að borga.

 

Utanbæjarfólki er óheimilt að taka strætó í Reykjavík og nágrenni nema í Garðabæ. Þeir sem taka srtætó í Garðabæ verða þó að yfirgefa hann áður en hann ekur inn á önnur svæði á höfuðborgarsvæðinu.

Einnig er utanbæjarfólki ekki heimilt að kaupa sér í matinn nema í sérstökum verslunum.

Einnig er utanbæjarfólki ekki heimilt að ganga Laugaveginn nema það eigi leið í listaháskólann, en þá einungis fyrir klukkan 08:00 og eftir kl. 20:00. Mælt er með því að viðkomandi gangi að listaháskólanum um Hverfisgötu sem er opin öllum allan sólahringinn.

Utanbæjarfólki er ráðlagt að fara sínar ferðir í einkabílum, en gæta þess að taka eldsneyti utan höfuðborgarsvæðisins, nema það er leyfilegt að fylla tankinn í Garðabæ.

Verslanir sem utanbæjarfólki er leyfilegt að versla í eru merktar með rauðum hringlaga miða efst í vinstra horni bakdyra viðkomandi verslana.

Í Garðabæ er leyfilegt að versla í öllum verslunum hvort sem er að ræða heimamenn eða utanbæjarfólk.

Brot á þessum reglum eru tekin mjög alvarlega. Verði einhver uppvís að því að brjóta eða þverbrjóta þessar reglur kemur Hanna B og segir skamm, þú ert ljótur og gerðu þetta aldrei aldrei aftur.

 


Efnahagsflensa

 

Það er merkilegt að Geirhardur þurfi að fá hagfræðiprófessor til aðstoðar við að finna út úr einhverju sem kallað er kreppa. Þessi prófessor hefur haft að atvinnu að kenna hagfræðingum sem stjórnað hafa bæði efnahag fyrirtækja og ríkisins að minnsta kosti í áratug. Útkoman á þeirri efnahagsstjórn er með því lélegasta sm þekkist á jarðarkringlunni. Því mætti spyrja hvað voru þessir kallar að kenna ?,og hvaða visku tileinkuðu þeir sér þarna í súpergaggó á Melunum ?

Af fréttum er það helst að sjá að kreppur séu einhverskonar faraldur sem gengur yfir jörðina með vissu millibili og við það verði ekki ráðið. Það sé ekkert bóluefni til við efnahagskreppum. Það sé ekkert hægt að gera til að fyrirbyggja þessar kreppur né afleiðingar þeirra fyrr en þær séu skollnar á, en þá sé það jú of seint. Nýjasta kreppan er af Ameríkustofni, hún varð til í sýktri bankastefnu þar sem bankar lánuðu fólki sem þeir hefðu mátt vita að ekki gat borgað. En árangurstengd laun voru skynseminni yfirsterkari. Sama virðist hafa verið upp á teningnum hér á landi. Hér á landi voru fyrstu einkenni 100% lán Árna frammara til húsakaupa. Þar sáu sprenglærðir fasteignasalar tækifæri til að ná út pening einfaldlega með því að ofmeta verðmæti húseigna. Svo var lánað 100 % út á kofann, halaðar voru með þessu kerfi nokkrar millur á hús.  Þegar húsnæðisverðið og verðbólgan fór úr böndunum hrökklaðist Árni úr ríkisstjórninni og skömmu seinna fór formaðurinn sömu leið. Þar með var hluti framsóknar í stjórn landssins rokinn út í veður og vind, allavega í bili.

Hvers vegna er fjármálaráðherrann ekki látinn vinna vinnuna sína ? er það ekki hans vinna að hafa stjórn á fjármálum ? hvers vegna þarf Geirhardur einn spekinginn enn ? hann er yfirmaður Svartakastala sem hefur 40 hag-og viðskiptafræðinga í þjónustu sinni. Þessir hag-og viðskiptafræðingar hafa meira eða minna sitt vit frá ráðgjafanum sem Geirharður er að ráða til sín, hann ásamt öðrum fræðingum hefur kennt þeim fræðin þegar þeir voru í súprgaggó. Því fær dýralæknirinn enga ráðgjöf ? Hann sem á að standa fyrir fjármálum að minnsta kosti ríkisins. Þarf hann enga ráðgjöf ?, eða hvað.

Það er markt einkennilegt við þessa kreppu.

Hvað er að frétta af ofurstjörnunum og fjármálasnillingum liðinna ára sem tóku sér ofurlaun vegna snilldar sinnar á bissenss að þeirra eigin sögn ? Hvað með árangurstengdu launin ? eru þau enn í launaumslögum snillinganna ? eða eru þeir ef til vill að endurgreiða þau um þessar mundir ?

Það virðist sem þessi efnahagssjúkdómur leggist mis þungt á efnahag þjóða. Íslenskur efnahagur virðist vera viðkvæmari fyrir þessum sjúkdómi en önnur ef Súdan er undanskilið. Það skyldi þó ekki vera vegna þess að þeir sem greina eiga einkennin séu hálf sofandi, eða bein-línis að þeir hafi hag af ástandinu, eða er þeim bara sagt, þetta reddast. Vel uppalin húsmóðir sem rekur venjulegt heimili væri betri fjármála herra en dýralæknirinn í Hafnarfyrði og Geirhardur til samans.

Hún myndi segja, settu á þig trefil áður en þú ferð út í kuldann svo þú fáir ekki verðbólgu í hálsinn.

 


Hugleiðingar Magneu

Heyrðu Bubbi,  það er merkilegt þetta með súpergaggó á Melonum. Hann hefur útskrifað tugi ef ekki hundruð hagfræðinga og viðskiptafræðinga á undanförnum þrjátíu árum. Margir hafa farið í framhaldsnám til útlanda og tekið þar meistaragráður og doctorsgráður og jafnvel eitthvað meira. Þessir fræðingar hafa valist til að stjórna fyrirtækjum stórum sem smáum og að auki efnahag allrar þjóðarinnar. Já hvað með það Magnea mín. Jú sjáðu nú til Bubbi minn, það sem stingur mig er að þrátt fyrir alla þessa mastera og doctora er efnahagur landssins í rúst svo maður nú tali ekki um fyrirtæki eins og FL grúpp og fleiri fyrittæki sem hafa verið í frjálsu falli undanfarna mánuði. Magnea mín þetta er víst einhverjum ljótum köllum í Ameríku að kenna, svo er sagt.Það getur ekki verið einhverjum köllum í Ameríku að kenna þótt þeir séu ljótir. Nei Bubbi minn, mér er næst að trúa því að þrátt fyrir allan lærdóminn í súpergaggó hafi þeir annaðhvart ekkert lært eða þeir séu hreinlega svona illa uppaldir. Þessir masterar og doctorar hafa einfaldlega sett allt þjóðfélagið á nánast hausinn en lifa praktuglega af ofurlaunum og starfslokalaunum. Svo eru það einmitt þeir sömu sem gráta og segja okkur að allt sé að kreppast að okkur, og við almúgann sem aldrei hefur átt svo mikið sem sokka  til skiptana segja þeir þetta er ykkur að kenna þið hafið eytt alltof miklu. Heldurðu það Magnea mín.?Já.

Bankarnir

Maður tali nú ekki um bankana, þar eru kallar sem eru í peningaleik og borga sér tugir ef ekki hundruð milljóna á ári. Þeir segja okkur að þetta sé svo mikill vandi, að það verði að borga þeim það sem þeir kalla árangurs-tengda bónusa upp á einhverjar millur ofan á kaupið sem er þó ærið fyrir.Svo heyrir maður að bankarnir rambi á barmi gjaldþrots, og ríkið þ.e. við þurfi að redda þeim. Áætlaður kostnaður litlir 500-1000 milljarðar takk fyrir. Hver var að tala um bónusa og árangur. Borga þessir höfðingjar til baka eitthvað af þessum bónusgreiðslum ? Nei, örugglega ekki.En Magnea mín skilurðu ekki hvernig þetta virkar ? Nei.Þetta virkar þannig að ef vel gengur þá er greiddur bónus og ef illa gengur þá er greiddur bónus alveg eins og allt hafi gengið svaka vel.Nú virkar þetta svoleiðis ? ekki vissi ég það. Svaka er þetta skrítið það verð ég að segja.En hvernig er þetta með fyrirtækin sem þessir kallar eru að selja sjálfum sér fram og til baka ?Jú sjáðu nú til Magnea mín. Ef þú átt fyrirtæki sem þú segir að sé 30 milljarða virði og selur það á 40 milljarða hefur þú hagnast um 10 milljarða. Já en hver kaupir svoleiðis ? það skil ég ekki.Nú auðvitað Magnea mín fyrirtæki í eigu sömu aðila, það kaupir og selur svo aftur þetta sama fyrirtæki á 60 milljarða, fyrirtæki sem þeir eiga líka þá græða þeir 20 milljarða í viðbót, skilurðu sko ?Nei.Sjáðu nú til Magnea mín ég skal einfalda þetta fyrir þig. ISS-grúpp sem á Exgrúpp sem á ásamt Fláráðsgrúpp 75% í Eims, selur 20 % í hlut í Eims til Simmgrúpp og borgar með útgáfu nýrra hlutabréfa í ISS-grúpp, sem gefur út jöfnunarhlutabréf og afskrifar 15 % af eign sinni í Fláráðsgrúpp. Exgrúpp fjármagnar kaupin með sölu 10 % hlutar í  Eims og aukningu hlutafjár í sjálfu sér. Þetta getur ekki verið einfaldara Magnea mín, skilurðu sko ?Nei.Ekki ég heldur

Geislabaugur Hansa Hólm

 

Ég var að lesa í Mogganum að Baugsmálinu væri  lokið eftir sex ára hnoð. Hugsaðu þér ef Nonni hefði átt barn um leið og löggan fór að rótast þá væri það í skólanum núna, hugsa sér sex ár.

Hvað svo ? Lalli Jóns fékk álíka dóm fyrir að stela lambalæri sem kostaði 2230 mínus 40 % við kassan.rétt eins og Nonni, nema Lalli heimtaði að fá að sitja inni á Hrauninu  í vetur, því það væri svo helvíti kalt að vera úti. Svo fengi hann ókeypis mat í þokkabót.

Já hugsa sér. Ekkert eftir af upphaflegu kærunum nema ómerkileg færsla í bókhaldinu. Nonni hefur áræðanlega yfirsést þetta á sínum tíma. Svo sagði einhver lögfræðingur að líklegast væri ekkert fyrirtæki eða stofnun á Íslandi til, þar sem ekki findist álíka villa í bókhaldinu ef leitað væri á sama hátt og gert var hjá Baugi. Svo er víst reikningurinn fyrir þessu máli kominn yfir milljarð halda menn. Ábyggilega kostar ekki minna að verjast þessu þannig að í heildina er þetta á þriða milljarð sem herlegheitin kosta.

Það kostaði ekki krónu að fá Lalla dæmdan fyrir kétið. Dómarinn dæmdi karlinn í kaffitímanum, Lalli varði sig sjálfur. Kostnaður núll krónur.

Svo var verið að taka saman atburðina þegar þjófurinn sem stal orðunum og var dæmdur fyrir, var ráðinn til súpergaggó á Melonum.

Það var einhver BÍsleifur sem þá var menntamálaráðherra sem réði Hansa Hólm þrátt fyrir mótmæli háskólamanna sem sögðu að hann væri fúskari á sínu sviði og ætti ekkert erindi í súpergaggó, nema þá helst ef hann ætlaði að læra eitthvað gagnlegt. Þessi sami BÍsleifur var náttúrulega bara að gera eins og Dabbi sagði honum að gera, enda er BÍsleifur í Svartakastala eins og Dabbi.

Það hefur ekkert breyst síðan 1988, en það var víst þá sem honum var smeigt inn um dyrnar á súpergaggó á Melonum.

Óli vanhæfi segist ekkert vera vanhæfur hann geti alveg haft Hansa í vinnu. Óli vanhæfi segir að Hansi geti alveg kennt nemendum að afla heimilda þótt hann hafi ekki kunnað það sjálfur á sínum tíma. Svo er líka hérumbil búið að skamma Hansa fyrir að stela og það sé sko meira en nóg

Það er skoðun reynds prófessors við súpergaggó að seint verði súpergaggó talinn með 100 bestu meðan dæmdir þjófar væru þar við kennslu.

En veistu að eftir þessa ráðningu Hansa Hólm voru sett lög sem bönnuðu mennta-ráðherrum að skipta sér af mannaráðningum  í súpergaggó. En svo voru þau bara afnumin þegar þurfti að redda vini, enda allt annar mennta-ráðherra þá. Óli vanhæfi segir að það sé bara af illvilja að verið sé að rifja þetta upp og bara kommar eða þaðan af verra fólk láti setja svona á prent.

Og núna ártugum eftir að vörugjöld voru sett á tímabundið til varnar innflutningi frá EB löndum, eru þau enn. Spurningin er hvað er tímabundið lengi ?

Tugum ára eftir að kvótalögin voru sett, sem áttu að vernda fiskistofnana við landið eru stofnarnir hrundir. Þegar gjafalögin voru sett vor veidd 400.000 tonn af þorski og lofað meiru á komandi árum. Núna áratugum seinna má veiða 130.000 tonn.

Er einhver glóa í þessu ég bara spyr ?

Nei Magnea mín


Bubbi á Seyðisfirði daginn eftir.

 

Hvernig fannst þér potturinn í gærkvöldi,  Magnea mín ?

Bara flottur, eins og fyrri pottar á leiðinni hingað, svo var svo mikil reisn á þér Bubbi minn.

Ég held bara að ég haldi áfram og komi með þér með Norrænu til Danmerkur, hvað segir þú um það ?

Bara svona, ja því ekki það.

Ég var að spekúlera í þessu með flóttafólkið frá Palestínu. Sko þarna er fólk sem hefur ekkert ríkisfang og þar með engin vegabréf, og getur þess vegna ekkert farið. En þarna eru líka einhver ríkustu ríki heims eins og Kúvæt, Saudi Arabía, Dubai og hin furstadæmin. Moldrík og þar er fólk með sömu trú og þetta landlausa fólk, sem við köllum gjarnan flóttafólk, Hvað gera svo þessar moldríku þjóðir fyrir trúbræður sína ?

Sagði Múhameð ekki að þeir ættu að rétta hjálparhönd þeim sem minna mega sín ?

Og er það ekki líka haft eftir Alla að þeir sem eiga morðfjár ættu að láta af hendi rakna lítilræði til fátækra ?

Hvernig væri nú að trúbræður þessa flóttafólks færi að leiðbeiningum herra Múhameðs og redduðu þessu fólki um ríkisfang og aur ? Hvert fór ekkja Arafats með millurnar nema til Frakklands til að lifa þar í vellystingum praktuglega fyrir aurinn.

Hvað var svo Solla kerlingin að spá þegar hún setti á hausinn á sér handklæði og lofaði gulli fyrir 30 manns ? (verða trúlega 60 þegar upp er staðið ) Var þetta bara kaup á atkvæðum fyrir kerlinguna svo hún gæti sagt á fundum hjá Sameinuðu þjóðunum það sem kallinn í Svartakastali ákveður að séu skoðanir Íslendinga ?

Svo þegar einhver hefur efasemdir um að fjármunum sem fara í að bjóða þessu fólki uppá skyr og rjóma sé betur varið í að hjálpa því þar sem það er statt, og reyna að fá trúbræður þess til að gefa þeim döðlur og vegabréf, þá er það bara rasismi.

Ja hérna maður, ég held bara að þú eigir að koma með mér til Sviss.

Fæ ég gistingu hjá þér ?

Já þú með þessa reisn færð örugglega gistingu hjá fleirum en mér.

Þá er það ákveðið Magnea mín ég kem með.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband