Kæri Finnur

 

Það getur bara ekki verið sem ekki er sagt  um þig í Mogganum. Það getur einfaldlega ekki verið satt. Þú sem ert bæði búinn að vera Seðlabankastjóri og viðskiptaráðherra, hver á svo að trúa því að þú hafir klúðrað þínum bissess og að þú skuldir 3,7 milljarða. Þetta FS7 tapaði bara þessu og kemur þér bara ekkert við er það nokkuð?.

Og hvað með það þótt þú hafir Fikt-að eitthvað með þessa peninga, ekki getur þú neitt gert að því þótt þetta Fikt hafi skilað hálfum milljarði í hagnaði, þetta bara kom sisvona. No matter what.

Ég verð að segja það um þig elsku Finnur minn að ég hef ekki staðið þig að neinu ójöfnu í minn garð. Hvað aðrir segja verð ég að vísa til Moggans og Fréttablaðsins. Myndin af ykkur Ólafi þegar þið komuð frá henni Vagerði, eftir að hún hafði gefið ykkur Búnaðarbankann ætti að fá verðlaun sem besta frétta mynd allra tíma fyrir hrun. What else I say.

Esku vinur ég læt þetta duga núna , verð í sambandi síðar. Ég er að æfa mig í að skrifa á ensku, og læt einstaka korn fylgj með. Fuck no matter what.

Bestu kveðjur

Magnea


Kæri Bjarni Ármann

 

Það er langt síðan ég hef heyrt frá þér. En hafðu ekki áhyggjur af því, ég veit að það er mikið að gera hjá þér elsku drengurinn minn.  Öll þessi fyrirtæki og allur þessi gróði hlýtur að taka á og fara í skapið á þér og þínum.

Það tekur á taugarnar að fá 800 milljóna skuld afskrifaða, maður græðir ekki mikið á því. Ekki fór gæfulega þetta Glitir Property Holding, nei og aftur nei.  Hvað þá Imagine Investments, var það ekki annars félagið sem fékk þessar 800 millur lánaðar sem voru afskrifaðar nú um daginn ?

Elsku Bjarni minn vonandi er í lagi með SecurStore. Ég bara skil ekki í þessu pakki sem heimtar að allt sé boðið út, bara segi það. Hvað með það þótt þú fáir nokkrar millur fyrir frábært starf SecureStore á Skaganum? Hver hefði svo sem átt að kenna fólkinu að endursetja tölvurnar ? ég bara spyr?

Nei Bjarni minn þú skalt ekki hlusta á þetta pakk og halda bara þínu striki. Þegar ég heyrði skýringuna frá þér varðandi þetta lán sem þú lést afskifa, þá bara vöknaði mér um augun af hrifningu. Ég verð að koma þessu í bréfið til þín Bjarna minn, þvílík snilld. 

„Því miður þetta gékk bara illa „ Svona eiga menn að skýra hlutina, no more no less.

Þín einlæga

Magnea


Bloggfærslur 8. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband