12.4.2010 | 13:15
Kæru systur.
Auðvitað var það Bjarni gæsalappa-vafningur sem hafði forgöngu um að skipa þessa rannsóknarnefd sem allir eru að eigna eigna sér. Hvaða kjaftæði er þetta að einhver annar hafi fundið uppá þessu, no way segi ég þvílíkt bull. Allir vita segi ég að þið Sjálfstæðismenn hafið eldrei gert neitt sem gæti hugsanlega komið sér illa fyrir kjósendur ykkar. Allt þetta bull um að Dabbi og félagar eigi einhverja sök er bara illgirni og ósannindi. Sagan mun sýna, hvað svo sem þessi skýrsla segir, að þetta var allt hevítinu honum Steingrími að kenna, fock him. Gerða mín og dýralæknirinn í Hafnarfirði þurfa sko engu að kvíða, no way. Hvað þá heldur drengurinn sem var vélaður til að stjórna bankamálum ó nei.
Nú er að setja ríkistjórnina af og láta Bjarns gæsalappa-vafning og Sigmund glópalán taka við, I mean it yes.
Nú er að bretta upp ermarnar og moka inn fyrrverandi bankastjórum og fylgis-já mönnum þeirra og biðja þá afsökunar á að það hafi verið hastað á þá. Jafnvel greiða þeim skaðabætur úr ríkissjóði til að milda skap þeirra.
Ég segi það vinir mínir hlustið ekki á helvítis kommann, spyrjið heldur Halldór verkfræðing hvort nokkuð sé hæft í því að spillin hafi verið hjá hans fólki. Nei auðvitað var engin spilling á ferðinni hjá Gæsalappa-flokknum, óg þá ekki heldur hjá Glópalánsflokknum.
Nú eiga menn bara að detta í það og vera á viku fylleríi í boði Gerðu leikaradóttur.
Magnea
12.4.2010 | 08:31
Kæru bræður.
Bjarni gæsalappa-vafningur og Sigmundur glópalán. Nú er þessi blessaða skýrsla að koma fyrir sjónir Íslenku þjóðarinnar, time is on. Ég ætla að ráða ykkur heilt eins og ég geri ævinlega. Þið félagarnir ættuð nú í nafni og fyrir hönd ykkar bestu manna Davíðs og Halldórs að bjóða þjóðinni á fyllerí, I mean it yes. Þetta kostar bara brot af þeim styrkjum sem flokkurinn hefur þegið af útrásinni.
Látið opna allar vínbúðir landssins og bjóðið öllum sem vilja að drekka eins mikið og þeir geti í sig látið. Þetta kostar ekkert miðað við það sem við erum búin að borga og eigum eftir að borga fyrir bullið í ykkur íhanlds og framsónar-búbbunum undanfarna áratugi. Bara smáaurar, hugsið ykkur ánæjuna sem þessu fylgir, yes. Heil þjóð á skallanum meðan kyrjuð er einhver hryllingsskýrsla í þinginu, me good I say no more.
Börn og templarar sem ekki mega né vilja drekka guðaveigar , eiga að fá eftir mínu viti eins mikið kók og prinspóló og þeir torga, og auðvitað í boði Bónus, genius ekki satt. Þið ættuð at taka til skoðunar hvort ekki ætti að lækka aldurstakmörk til bróstbirtu-inntöku niður í 10 ár í einn dag,ég meina í dag.
Kæru bræður ég vænti þess að þið látið verða af þessu í nafni Dabba og Dóra.
Ykkar ástkæra
Magnea