Kæri Davíð.

Blush W00t LoL  

Það er naumast Raggi er reiður út í þíg, mér bara blöskrar. Það er bara ekkert að því að búa í glerhúsi eins og hann segir að þú búir í, Bara að hafa óbrjótandi gler í því. Hann má svo kasta grjóti, sandi og möl, það hefur ekkert að segja."no way". Ég er svo sannarlega sammála þér Dabbi minn varðandi þennan Háskóla Íslands, þar eru allir á móti þér varðandi þennan „Icesave „ þrjú samning. „yes".

Hvernig er það með hann Hannes okkar Hólmstein, er hann ekki enn í þessum Háskóla ? Getur hann ekki komið viti fyrir í kollunum á þessu pakki sem á að lofsingja samninginn ? „I simpy ask". Þetta væri nú allt öðruvísi ef menn hlustuðu á þig Dabbi minn. „yes" Ekki er hægt að kenna þér um það hvernig fór með þetta „Icsave" ævintýri. Ég veit ekki betur en þú hafið varað við  þessu alla tíð meðan þú varst í Seðló. „warning warning warning yes"  Meira að segja reyndir þú eftir bestu getu, og meira en það að bjarga Landsbankanum sem þú gafst Bjöggunum "yes" voru það ekki björgunaraðgeriðr upp á 300 kíló millur ? ég bara spyr „yes simply ask me frend".

Auðvitað voru það ótíndir glæponar frá Baugi sem gerðu þetta allt saman, þeir settu alla banka á hausinn, einir og óstuddir með hjálp skólabræðra þinna úr Háskólanum. „fock them all yes".

Kæri Dabbi nú er Gnarri að hóta okkur að fara til Grænhöfðaeyja, Heldur þú ekki að hann þurfi einhverja með sér ? Ég sá það í einhverju óþverrablaði að einhver náhirð væri óánægð með þennan „Icesave" þrjú samning. Væri sú hirð ekki sæmandi Gnarranum á þessum grænuhausaeyjum ? Ég bara segi ekki meir. „tell no more"

Jægja Dabbi minn þetta verður ekki lengra í bili bless bless" by by yes me dear Dabbi".

Þín einlæga

Magnea.

 


Kæri Jón Snorri.

Gasp Crying  

Þetta er nú meira eineltið sem þú verður fyrir þessa dagana. Ég man það svo vel þegar þú laukst prófinu í peningafræðunum og byrjaðir að kenna í súpergaggó á melonum með honum Hansa orðaþjóf.

Hvað er fólk að nöldra yfir einhverjum töppum sem þú seldir og keyptir ? Fékkstu ekki tífalt verð fyrir þá þegar þú seldir þá ? ég bara spyr „simply ask" Eru menn virkilega að kvarta yfir því að þú skyldir græða á þessum töppum ? Hvað kemur það málinu við, að þeir pössuðu ekki á flöskurnar ? flöskurnar voru bara ekki með rétta stúta fyrir tappana. „Yes me boy".

Hvað á það svo að þýða að tína til einhverja hótelreikninga frá útlöndum ? Auðvitað verður þú eins og við hin að gista einhvers staðar þegar við skreppum út í heim. „ Simply so". Auðvitað eru þetta persónuleg útgjöld, og hvað með það ? „ I ask yes". Hver getur verið án síma nú til dags ? svarið er enginn. „ nobody" Auðvitað er best þegar maður þarf ekki að borga svoleiðis leiðindareikninga sem símareikningarnir eru, öfundarpúkarnir eru eitthvað að fleipra með að þessir leiðindareikningar séu uppá 740.000 . Ég Nonni minn segi bara,  svona eiga lektorar og MBA sérfræðingar að kenna sínu fólki, hvað annað ? „Hold your striki" eins og Reykhás sagði. „yes me boy".

Bíll og ekki bíll, dæmigert fyrir öfundina að tína það til með bílinn, eru þessar druslur nokkurs virði ég bara spyr ? Fyrir  mér er þessi sveifla með bílinn algjör snilld, ekki minni snilld en Icseve. Þú ættir að gera þetta að skylduverkefni  hjá þeim sem þú ert að MBA-a. „yes". Elsku Nonni minn ég bíð spennt eftir því að þú verður próffi í súpergaggó eins og vinur okkar Hansi. „yes,yes,yes"

Ég þarf að þjóta núna Nonni minn skrifa þér seinna. Bless bless.

Þín Magnea


Bloggfærslur 21. mars 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband