Arion þvottaefnið

 

Halló halló, loksins loksins !

Gleðifréttir fyrir þá sem málið varðar !

Á markaðinn er nú komið þvottaefnið Arion. Það hvítþvær samvisku manna eins og ekkert sé, einnig er hægt að hreinsa burtu skuldir og gjaldþrot.

Þetta nýja efni frá Arion hefur sannað virkni sína og fengið viðurkenningu bankaeftirlitsins og fjármálaeftirlitsins. Efnafræðingar Arions hafa unnið hörðum höndum í marga mánuði við þróun þess og tilraunir á því. Lokatilraunin sem gaf endanlega niðurstöðu fór fram í Sviss þar sem Ólafur nokkur Ólafsson býr.

Í leiðbeiningum stendur :

A: Til að hreinsa mjög slæma samvisku skuli gefa viðkomandi eina kúfaða matskeið og láta hann skola því niður með hálfum lítra af freyðivíni.

B: Til að hreinsa gjaldþrot, þarf að gefa tvæt kúfaðar teskeiðar af þessu undraefni fyrir hvern milljarð sem hreynsa á og skola því niður með koníaki um það bil 30 sentrilítrum.

C: Ekki er mælt með að fleiri en fjórir milljarðar séu hreinsaðir á einum sólarhring þar sem koníakið er bæði dýrt og mjög áfengt.

D: Sé samviskan sérlega slæm og erfið hreinsunar má endurtaka meðferðina einu sinni til tvisvar, það ætti að nægja fyrir svörtustu samvisku.

 

Þá er um það vil að koma í sölu efni sem veldur glansi hjá þeim sem hreinsaðir hafa verið  með Arion hreinsiefninu.

 

Þetta glansefni er heitir Glitur og var þróað á Kirkjusandi undir eftirliti Glitnisbanka og þróunin var kostuð af  Bónusfeðgum. Lokatilraunum eru um þessar mundir að ljúka og eru þeir Bónus feðgar þáttakendur í þeim. Eins og margir hafa tekið eftir er kominn háglans á Jóhannes, en soninn þarf að hreinsa betur . Það verður að vera búið að meðhöndla viðkomandi með Arion þvottaefninu til að glans náist með Gliti.

 

Kaupa núna 50 % afsláttur fram yfir helgi. Fæst í öllum útibúum Arionbanka og hjá Svenna bankastjóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband