Kæra Ingibjörg Sólrún.

 

Mikið þykir mér vænt um að lesa í ekki mogganum um að þú sért alsaklaus. Þetta hef ég svo sem alltaf vitað, það er ekki það,  me dear. Hvað með það þótt þú hafir fengið að lesa svo sem fjórar síður úr þessari svokallaðri rannsóknarskýrslu, sem enginn hefur fengið að sjá og enginn á að fá að sjá fyrr en á mánudaginn, no way. Ég bara segi það hvað eru þessir pésar að bera uppá þig að þú hafir vitað eitthvað sem einhverjir ráðherrar vissu um peningamál. Hvað á það að þýða að vera að focka í þér, vita mennirnir ekki að þú varst að smala múslimum, meðan Haarde stýrði öllu til fjandans ásamt vini þínum og flokksbróður, honum.... hérna hvað heitir hann nú ? jú ég man það núna, Sigurður eða Sigurðsson, I dont care: fock him any way.

Ég meina bara, það var gott hjá þér að segja þýskurunum að þú hafir ekkert getað gert því þér var ekkert sagt.

Hvað voruð þið Siggi í Kauþing aftur að gera til Köben ? Voruð þið ekki að segja vitleysingjunum í Danska banka að þeir hefðu ekkert vit á íslenskum fjármálum, og ættu ekkert að vera að rífa kjaft. Bankamálin væru sko skotheld á Íslandi og ekkert að þeim. Helvítis focking fock er þetta.

Elsku Solla mín, mér dettur ekki í hug eitt augnablik að þú verðir dregin eitt eða neitt útaf þessu sem stendur á þessum fjórum síðum sem þú nefndir að þú hafir fengið að lesa yfir öxslina á einhverri rannsóknarnefnd, fyrr í vikunni, no way að ég trúi þessu.

Þín einlæga

Magnea


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband