9.4.2010 | 11:50
Sakleysingjarnir, sjö alsaklausustu.

Halldór Ásgrímsson, frumkvöðull númer tvö um einkavinavæðingu bankanna. Alsaklaus, honum var sagt að allt væri í þessi fína, var utanríkisráðherra og síðar forsætirráðherra, vissi ekkert.
Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra framkvæmdastjóri um einkavinavæðingu fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins Alsaklaus, vissi ekki betur en allt væri í þessu fína. Hrunið einhverjum ljótum köllum í útlöndum að kenna.
Valgerður Svessisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra framkvæmdastjóri um einkavinavæðingu bankanna fyrir hönd Framsóknarflokksins. Alsaklaus, var ekki í landinu og enginn sagði henni neitt. Var í atkvæðaleit í útlöndum.
Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra vissi ekki annað en allt væri í þessu fínasta lagi, fór bæði í austur og vestur til að sannfæra útlendinga um að allt væri í fínu lagi með bankanna. Alsaklaus, hrunið ekki honum að kenna og alls ekki Sjálfstæðisflokknum og þá ekki heldur Hannesi Hólmsteini.
Bjarni Benediktsson sem sumir kalla gæsalappa-vafning, Núnerandi framkvæmdastjóri og forstjóri Sjálfstæðisflokksins. Alsaklaus tók þátt í einhverjum vafningum og fé-sveiflum fyrir sig og sína. Pissar bensíni á efnhagsbálið.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, kallaður Sigmundur glópalán eftir för hans við annan mann til Noregs. Alsaklaus, var í leikskóla í aðdragandi hrunsins, pissar steinolíu á efnahagsbálið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.