Kæra Þorgerður K

 

Mikið varstu nú réttsýn og yfirveguð í partíinu í Stapa. Þú bara fékkst margar stjörnur fyrir það að biðja slokkinn afsökunar. Ég er sko sammála þér að þjóðin þurfi engar afsakanir frá þér, enda hefur þú ekkeret gert á hlut þessarar þjóðar út af fyrir sig. Það er auðvitað fólkið í partíinu sem er fullt vorkunar og hefur nú meðtekið afsökunina og klappað fyrir þér.

Mér finnst svo sem eins og Bjarni gæsalappa-vafningur ætti sisvona að íhuga hvort hann þurfi líka að biðjast afsökunar á einhhverju.

Hveð er fólkið  líka að  gera með nefið ofaní ykkar koppi ? Stjáni skuldaði ekkert og hvað þá heldur þú Gerða mín. Mér finnst þetta bara alveg óþarfi að vera með eitthvað væl út í gerða hluti, afsakaðu er meira en nóg fyrir þetta pakk.

Vonandi kemur þú aftur til starfa fyrir þjóðina sem allara fyrst. Þessi svokallaða nefnd sem á að lesa áróðursskýrsluna sem kom upp um ykkur hjónin á áræðanlega eftir að komast að því að þú hafir ekkert gert ólöglegt né ósiðlegt.

Elsku dúllan mín, ég segi bara. Áfram Gerða, áfram Gerða, áfram Gerða yes.

Þín elskaða

Magnea


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband