Kæri Kalli

KissingInLove

 

Hvað eru þessir trúleysingjar að brúka kjaft út af einhverju bréfsnifsi  sem þú gleymdir á skrifborðinu hjá þér og hvað á það eiginlega að þýða að skrásetjari heimti að bóka svona snepla „I simply ask". Hvers konar er þetta með hann Bjarna gæsalappa?  Hann er ekkert betri, heimtar að allir þingmennirnir og konurnar fari í kirkju til að hlusta á biskupaorð. Veit hann ekki að það er stórhættulegt að vera á rápi milli kirkju og þinghúss „ dont say more".  Ég segi bara Kalli minn þótt einhver prestur eða biskup hjálpi konum í neyð og lesi yfir þeim huggunarorð og sé mannlegur í viðmóti, er að bara ekki hið besta mál ég bara spyr ?  Ekki dettur mér í hug að þjónar almættisins séu eitthvað hinsegin, hvað þá að þeir séu uppáþrengjandi  við syrgjandi ekkjur ó nei „no no no"  Það þarf nú eitthvað meira en krumpað bréfsnifsi og það óbókað til að fá mig til að trúa því.

Kalli minn haltu áfram á beinu brautinni og láttu ekki öfundarpakkið hafa áhrif á þínar gjörðir „no no no". Það er enginn  betri en þú til að halda trúleysingjunum frá okkar ástsæla Alþingi . Burt með alla trúleysingja og komma úr húsinu.  Ég er viss um að Sigmundur glópalán er okku Bjarna gæsalappa sammála „ no question".

Bless bless

Magnea.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband