7.5.2012 | 13:28
Kæri Davíð.
Mikið þótti mér vænt um ábendinguna ykkar Staksteins um
Shengen. Auðvitað eins og allir vita er það afsal á fullveldinu að hleypa hér
inn allskyns útlendingum svo til óheft. Yes idepend disaster".
Hverjum datt eiginlega í hug að koma okkur í þessa
bullandi vitlausu stöðu eiginlega? Yes who".
Þetta er örugglega allt honum Steingrími að kenna."who
else" ég bara spyr.
Hver var annars skipsstjórinn á þjóðarskútunni þegar
inngangan í EES var samþykkt ? Yes I ask".
Hver var svo skipstjórinn á þjóðarskútunni þegar shengen
aðildin var samþykkt ? I simply ask again".
Þetta var allt saman fyrsta og öðrum stýrimanni að kenna,
það er ég viss um Dabbi minn. Þeir hafa verið á dúndrandi fylliríi og ekki
vitað hvað þeir voru að gera er ég viss um. drinking problems".
Nú er einhver kerling skipsstjóri sem þú segir réttilega
að sé í einhverskonar EB-vímu hvað svo sem það nú er. EB-drugs" .
Vonandi eru fyrsti og annar ófullir og með aðra höndina á
stýrinu tilbúnir að rétta kúrsinn. right the kúrs".
Það væri gæfa þjóðarinnar ef þú af þínu lítilæti gæfir
þeim rétta staðsetningu og hvert skútan á að halda, svo hún steyti ekki á
þessum EB-skerjum. Yes David me frend".
Elsku drengurinn minn, ekki láta okkur verða EB-plágunni
að bráð. no".
Davíð minn vonandi er jarðvegurinn í Hádegismóanum
óspilltur af þessu EB-eitthvað.
Ég fylgist með svörunum ef einhver getur svarað þessu með
EES og Shengen.
Bless bless Dabbi minn
Þín Magnea
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.