Kæra Kolbrún Bergþ

SmileHeartSick

Kæra Kolbrún Bergþórs.

Mikið er það satt hjá þér sem þú páraðir í blaðið ykkar Dabba. Auðvitað er það tómur dónaskapur og ekkert annað en öfund þegar verið er að klína því á Bjarna gæsalappavafning og Sigmund glópalán að þeir séu þar sem þeir eru vegna þess að pabbar þeirra eru svo ríkir, „yes welthy".

Þeir geta ekkert gert að því þótt þeir eigi ríka pabba.

Það er ekki að spyrja að þessu öfundarhyski í Samfylkingunni sem ekkert vit hefur á peningum, þeir sjá drauga í hverri peningahirslu. „yes ghosthillu" eins og reykhús sagði svo snilldarlega á sínum tíma.

Fattar þetta pakk ekki að velgengni íslenskar stjórnmálamanna fer ekki eftir því hvort pabbarnir eigi einhverja aura eða ekki, heldur fer frami þeirra eftir því hvað pabbarnir hafa fengið mikið afskrifað af skuldum og hve marga vafninga þeir hafa tekið, „yes turning papers".

Þetta fólk veit bara ekkert hvað það er að nöldra og ætti bara að skammast sín, „blame them all"

Eins og hægt sé að afskrifa hjá hverjum sem er, nei svoleiðis er ekki gert. Það verður að velja rétt fólk til að afskrifa hjá og ekki stjórnar Bjarni gæsalappi því, „no control" en spurðu hann Steingrím hann stjórnar afskriftum. „yes"

Kola mín haltu áfram að skammast út í öfundarpakkið þú ert best í því, láttu bara ekki skáldagyðjuna stjórna því hvar þú párar, þú gætir gætið fengið nobelinn og ekki er það nú gott.

Ég hef samband við tækifæri Kolla mín

Þín Magnea


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband