18.8.2008 | 10:24
Höfuðborgarsvæðið.
Nemar utan af landi fá ekki lengur frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu, Garðbæingar þurfa líka að borga.
Utanbæjarfólki er óheimilt að taka strætó í Reykjavík og nágrenni nema í Garðabæ. Þeir sem taka srtætó í Garðabæ verða þó að yfirgefa hann áður en hann ekur inn á önnur svæði á höfuðborgarsvæðinu.
Einnig er utanbæjarfólki ekki heimilt að kaupa sér í matinn nema í sérstökum verslunum.
Einnig er utanbæjarfólki ekki heimilt að ganga Laugaveginn nema það eigi leið í listaháskólann, en þá einungis fyrir klukkan 08:00 og eftir kl. 20:00. Mælt er með því að viðkomandi gangi að listaháskólanum um Hverfisgötu sem er opin öllum allan sólahringinn.
Utanbæjarfólki er ráðlagt að fara sínar ferðir í einkabílum, en gæta þess að taka eldsneyti utan höfuðborgarsvæðisins, nema það er leyfilegt að fylla tankinn í Garðabæ.
Verslanir sem utanbæjarfólki er leyfilegt að versla í eru merktar með rauðum hringlaga miða efst í vinstra horni bakdyra viðkomandi verslana.
Í Garðabæ er leyfilegt að versla í öllum verslunum hvort sem er að ræða heimamenn eða utanbæjarfólk.
Brot á þessum reglum eru tekin mjög alvarlega. Verði einhver uppvís að því að brjóta eða þverbrjóta þessar reglur kemur Hanna B og segir skamm, þú ert ljótur og gerðu þetta aldrei aldrei aftur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.