Illdragsill vinjetta 1 af 20

 

20 vinjettur

Tréið Ill-dragsíll.  Er ekkert skylt  tréinuYggdragsil

Ill er vondur í merkingunni illur dragsill er samsetning úr enska orðinu drag sem getur þýtt að drattast, og sill er dregið úr franska orðinu sillage sem getur merkt fótspor. Samanber " Marcher dans le sillage"   Sem sagt, vont er að drattast úr sporunum.

 

Vinjetta-1

Tréið Ill-dragsíll gengur upp í gegnum viðskiptaheiminn allan og aðra heima. Angar hans ná til allra skúmaskota viðskiptaheimsins og annarra heima. Tré þetta hefur þrjár rætur. Ein þeirra er í mannheimum, ein í hugarheimi og ein í viðskiptaheimi. Við þá rót sem er í viðskiptaheimi er brunnur nokkur sem heitir Heimskubrunnur, þrjár skessur búa þar í grend og hafa það að starfa að ausa vatni úr Heimskubrunni á rót trésins Ill-dragsíl. Skessur þessar heita Foræði, Nújá og Skuldaskil. Foræði er elst og hefur á forræði sínu fortíðina, næst henni kemur Nújá sem hefur forræði yfir nútíðinni og þá kemur sú sem heitir Skuldaskil, hún á að sjá um framtíðina. Við eina rótina er er púki sem Níðbítur heitir, hann er stöðugt að naga rótina sem er í mannheimi þetta er rót vandans. Á efstu grein trésins situr fugl nokkur sem Davíð heitir, hann er fráeygður mjög og sér allt sem fram fer umkringis trénu. Þar sem sumar greinar trésins eru þétt vaxnar á Davíð erfitt að sjá hvað fer fram undir laufum greinanna. Því hefur hann tamið sérstakan njósnara sem heitir Hólmsteinn. Hólmsteinn þessi er í líki íkorna. Hann fer um tréið frá Níðbít til Davíðs og ber Davíð slúður um þá sem leynast í þykku laufi trésins.

Skessurnar  Foræði, Nújá og Skuldaskil hafa í tómstundum sínum spunnið allmikinn vef sem þær hafa með göldrum tengt við sérhverja peningastofnum í viðskiptaheiminum. Þannig er einn þráður í þessum vef tengdur einni peningastofnum. Þræðirnir í vefnum eru kallaðir lánalínur. Nú þegar þráður slitnar fer viðkomandi peningastofnum á hausinn, svo einfalt er það nú.

Dag einn sitja skessurnar þrjár við Heimskubrunninn og drekka vodka af stút, þá segir Foræði hey stelpur eigum við ekki að gera smá grín, og í þeim orðin sveiflar hún vodkaflöskunni en gætir ekki að því hve nærri hún er vefnum. Það er ekki að sökum að spyrja tveir þræðir slita og einn en nánast í sundur. Ææ segir Foræði, þar fóru tvær lánalínur, hvert skyldu þær liggja ? Nújá rekur þræðina til banka á Bísalandi sem er grein í tréinu, hún segir djö...  þeir liggja báðir á sama stað og þessi sem er hálf slitinn líka. Þegar Nújá ætlar að laga þenna þriðja þráð vill ekki betur til en hún togar of fast í hann en meiningin var að hnýta hann saman aftur, úps, ææ, þar fór hann líka. Nújá kallar á Skuldskil og biður hana að taka við, síðan fær hún sér einn í viðbót úr vodkaflöskunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband