ENERGI ævintýri fyrir framtíðarbörn

BanditNú eru nöfnin önnur en ferillinn sá sami !!!

Þeir sátu í koníaksstofunni á Hótel Holti Bármann í Íbank og Kalli í Fláráðsgrúpp. Heyrðu Kalli sagði Bármann, hvernig væri að við keypum einhver af þessum orkuveitum, það verður áræðanlega hægt að hagnast á því. Erum við nokkuð í þeim bissness segir Kalli, ættum við ekki heldur að kaupa Hvalfjarðargöngin eða Sundabrautina það er þá stax hægt að hækka gjöldin og raka saman gróða. Néi segir Bármann ég held að orkugeirinn sé vænlegri. Ok segir Kalli hvernig er það er eitthvað svoleiðis til sölu? Það má alltaf redda því segir Bármann bara að kippa í nokkra spotta, þá smá kemur það. Ég gæti til dæmis talað við kallinn í Svartakastala þú veist þann sem nagar blýantana þar, ef hann kveikir græna ljósið rúllar þetta af stað, það er ég viss um. Flott segir Kalli í Fláráðsgrúpp, en eigum við kannski að bjóða Bjögga að vera með ? Nei ekki strax segir Bármann kannski seinna þegar þetta er farið að rúlla, og ef okkur skyldi vanta klínk. Ok segir Kalli  er ekki best að stofna eitthvað félag til að hafa sem kaupanda, það lítur kannski ekki nógu vel út ef Ísbank og Fláráðsgrúpp séu að kaupa orkufyrirtæki. Jú þú segir nokkuð, eitthvað sem vísar til orku til dæmis “energí” eða eitthvað svoleiðis þá er það útlenskt og útlendingar skilja fyrir hvað fyrirtækið er. Svo væri hægt að vísa til hitans og hafa til dæmis Geysir í nafninu líka. Svaka ertu klár Bármann segir Kalli, Energi Geysir flott nafn meira að segja ég skil þetta. Þjónn meira koníak kallar Bármann.

 Svo líður tíminn. Blýantanagarinn í Svartakastala kveikir græna ljósið kippt er í nokkra spotta. Bármann kallar saman fund það er, hringir í Kalla og biður hann að líta við í bankanum við hentugleika. Kalli er í útlöndum en lofar að koma við í bankanum þegar hann kemur heim. Allar góðar utanlandsferðir enda einhverntíma, þannig var með þessa. Þegar Kalli er kominn til landssins skreppur hann í bankan til Bármanns. Kalli spyr er eitthvað að frétta af þessu orku eitthvað ?  Ég er nú hræddur um það segir Bármann, ég kippti í nokkra spotta og við það varð til áhugi hjá þremur sveitalubbum á að selja, Víkurgrind, Gerðissandur og Fossasel vilja óðir selja. Þeir segjast geta borgað allar skuldir og búið til ráðhús og alles ef þeir fá að selja. Hvað er þetta mikið segir Kalli? Það er þó nokkuð og alla vega fín byrjun segir Bármann, svo svælum við meira út úr hinum sem ekki eru tilbúnir alveg strax, og verðum komnir með ráðandi hlut eftir eitt til tvö ár.Hvað með Bjögga spyr Kalli ? Við bíðum með hann í bili getum alltaf boðið honum ef okkur langar til. Eigum við ekki að skreppa á Holtið það er svo helvíti gott koníakið þar. Laungu seinna er Bármann spurður um það af hverju Energi Geysir sem Ísbank og Fláráðsgrúpp eiga séu að vasast í heytu varni og rafmagni. Við erum að undirbúa innrás eða útrás á þessu sviði er svarið, annars ætlum við að reka þetta til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar. Þeir þurfa jú að velgja hjá sér húsin og svo verða þeir að getað lesið Moggann í skammdeginu, til þess þarf rafmagn. Við munum að sjálfsögðu gæta hagsmuna þeirra og selja þeim yl og birtu á nánast kostnaðarverði. Daginn erftir er þversíða Moggans og Blaðsins með stríðsletri. Energi Geysir sér viðskiptavinum sínum fyrir hverskyns orku á kostnaðarverði. Heyr fyrir einkavæðingunni hún svín virkar. Það er bullandi samkeppni í orkugeiranum heyr heyr amen.  Nú líður tíminn enginn man neitt erftir þeim tímum þegar sveitalubbarnir áttu orkufyrirtækin. Þeir Bármann og Kalli sitja á Holtinu eina ferðina enn með kaffi í bollum og koníak í glösum. Hvað eigum við mikið í þessu orkuapparati þarna á Nesareyki spyr Kalli ? Það er nú það segir Bármann ætli við eigum ekki svona 51 prósent . Þá erum við með þrjá í stjórninni segir Kalli, bara komir í meirihluta, svaka erum við klárir. Já segir Bármann en þetta liti miklu betur út ef við hefðum fleiri hluthafa, það er svolítið halló að það séu bara tveir hluthafar. Já hvað gerum við í því segir Kalli. Við gætum kannski selt eins og 5 prósent til almennings, þú veist fíflanna sem kjósa á fjögurra ára fresti. Þau atkvæði lægju dauð á aðalfundum og við héldum áfram að stjórna apparatinu. Þú segir nokkuð segir Bármann, skál. Þeir dreypa á koníakinu. Heyrðu segir Kalli hvað með Bjögga er eitthvað vit í að selja honum þessi 5 prósent í staðin fyrir fíflunum ? Nei mér líst ekkert á það segir Bármann hann gæti snúist á sveif með þessum sem eiga 49 prósentin og þá erum við ekki lengur með meirihlutann. Nei það er satt segir Kalli. Skál. Svo líða mánuðir. Bjöggi sem fékk ekki að vera með hefur verið að kaupa hluti svona smá saman og er nú kominn með 46 prósent af þeim 49 sem voru í eigu hinna sveitalubbana sem ekki vildu selja á sínum tíma. Nú skrifar Bjöggi fíflunum og bíður tvöfalt verð miðað við það sem þeir keyptu á af Energi Geysir. Fíflin selja öll sem eitt, enda eru þetta bara kjósendur. Nú er Bjöggi kominn með 51 prósent, og segir við Kalla og Bármann. Jæja piltar ég á orðið meira en þið og heimta þrjá í stjórn. Bármann og Kalli ráða ekki við Bjögga svo þeir hugga sig bara á Holtinu með koníaki. Hvað eigum við nú að gera segir Kalli ? Það er nú það segir Bármann, gæti verið að við ættum að bjóða Bjögga að gera yfirtökutilboð í Energi Geysir, miðað við það sem ég heyrð hjá einu fíflinu þá ættum við að græða einhver hundruð milla ef hann er tilbúinn að kaupa á verðinu sem fíflin seldu á. Hringjum í kauða og viðrum þetta við hann segir Kalli. En hvað með blýantanagarann í Svartakastala segir Bármann verðum við ekki að stinga einhverju að honum svo þetta klúðrist ekki. Jú ég redda því segir Kalli, nokkra miða á saga klass það dugir áræðanlega. Þá er að hringja í Bjögga. Bjöggi er kurteis og segist vera velviljaður fólkinu í landinu og myndi hugsa fyrst og fremst um hag þess ef hann keypti Energi Geysir af þeim Kalla og Bármann. Flott byrjun sagði Bármann þegar símtalinu lauk við Bjögga. Skál sagði Kalli, þjónn meira koníak. Bjöggi er ekkert að flýta sér hann veit sem er að Bármann og Kalli ætluðu að hækka heita vatnið og rafmagnið áður en þeir byðu Energi Geysir til sölu. Best að leyfa þeim að svitna svolítið hugsar Bjöggi. Um síðir boðar Bjöggi þá Bármann og Kalla á fund. Bjöggi heldur sína fundi í höfuðstöðvunum og þar er bara boðið uppá kristal eða kranavatn. Þeir mæta þar Bármann og Kalli. Jæja strákar hvernig eigum við að hafa þetta segir Bjöggi, er 10 á hlut ekki hæfilegt ? Bármann horfir á Bjögga með opin munninn, hvað ertu að segja Bjöggi minn 10 á hlut ertu eitthvað verri maður, við stórtöpum á því er það ekki Kalli. Jú stórtöpum segir Kalli, ekki minna en 20 á hlut, allt annað er tómt rugl. Jæja segir Bjöggi ég bíð ykkur 15 á hlut og þið stórgræðið. Ég veit að þú keyptir af fíflunum á 16.2 á hlut svo þetta er ekki sanngjarnt segir Bármann. Nú hvernig veistu það? Þetta var allt í trúnaði milli fíflanna og mín segir Bjöggi. Sum fífl eru meiri fífl en önnur segir Bármann. OK segir Bjöggi ég kaupi þá af ykkur á 16.2 eins og af fíflunum. Má bjóða meiri kristal eða vatn segir Bjöggi. Nei takk sama og þegið segir Kalli. Þannig eignaðist Bjöggi eitt stykki hitaveitu og eitt stykki rafveitu. Það var að vísu ekki Bjöggi í eigin persónu, heldur fyrirtæki hans sem keypti. Nú líður tíminn, Bármann og Kalli urðu moldríkir og snéru sér að öðrum bissness. Déskoti var þetta flott hjá okkur sagði Bármann þegar þeir Kalli hittust á Holtinu eftir að vera búnir að selja Bjögga. Hvað eigum við að gera við millurnar segir Bármann. Veit ekki segir Kalli, en ég er að hugsa um að kaupa eina Lyrjet nenni ekki að þvælast með áætlunarflugi lengur. Hinir farþegarnir eru alltaf að benda á mig og pískra eitthvað um lúxus, og þeir geta það þessir segja þeir og benda á mig. Ef þú kaupir aðra Lyrjet þá fáum við betri díl segir Kalli.Þú segir það segir Bármann, en gætum við kannski keypt þessa rellu saman ? það væri ef til vill ekki svo vitlaust fyrir okkur tvo að eiga relluna saman ? Hugsum málið segir Kalli. Skál, þjónn meira koníak. Tíminn líður allir á kafi í bissness og engin að hugsa um hag fíflanna í landinu sem láta húsin sín svelgja heyta vatnið og flóðlýsa hjá sér kofana minnst 100 kerti í hverju herbergi nema í stofunni þar er minnst kveikt á 200 kertum með dimmer.Dag einn í byrjun árs, það hefur verið óvenju kalt og mikið myrkur þá er smá frétt á jarðarfarasíðunni í Mogganum, ekki minnst á það í Blaðinu.ÓTNIT ÓÍR gerir yfirtökutilboð í fyrirtæki Bjögga. Svo er viðtal við Bjögga. Blaðamaður, af hverju ertu að selja Bjöggi. Bjöggi, ég er orðin gamall og nenni þessu ekki lengur. Blaðamaður, það er nefnilega það til hamingju með söluna. Bjöggi, takk.Það lendir Súper-Lyrjet á vellinum þrír menn stíga út úr henni. Þeir halda rakleiðis í Svartakastala. Það veit enginn við hvern þeir vilja ræða í Svartakastala, ekki heldur um hvað þeir vilja ræða við þann sem engin veit hver er. En þegar þeir koma út úr Svartakastala leikur um varir þeirra tvírætt bros, sumir sögðu glott aðrir sögðu að einn þeirra hafi skellihlegið. Nú bruna þessir herramenn upp á Moggaskrifstofu til að biðja Moggann að hafa við sig viðtal. Þeir vilja ekki eyða pening í auglýsingu, miklu betra að láta Moggan sjóða saman frétt. ÓTNIT ÓÍR sem nýlega keypti Energi Geysi hefur ákveðið að selja Alcan sem er í eigu ÓTNIT ÓÍR allt það rafmagn sem þeir geta framleitt í orkuverum Energi Geysi. Verðið er trúnaðarmál. Þeir notendur sem hafa verið í viðskiptum við fyrirtækið bíðst þó áfram að kaupa rafmagn til lýsinga á híbýlum sínum á örlítið hærra verði, með þeim skilyrðum að þeir noti 50 kerta perur í staðin fyrir 100 kerta perur. Einnig verða sömu notendur að skuldbinda sig til að kaupa heitt vatna á 30 prósent hærra verði. Ef þeir taka ekki þessu kostaboði, þá bara skrúfum við fyrir vatnið og slökkvum ljósið hjá þeim. Þeir mega frjósa okkar vegna í myrkri og norðannæðingi. Skál. Amen.is.is.is
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Kristjánsson

Ekki flóknara en það. Minnir mig á Sogsvirkjanirna þegar börnin spurðu. Fenguð þið ekkert fyrir virkjunina og rafmagnið? Jú, hann afi keypti bíl.

Jón Kristjánsson, 1.9.2009 kl. 07:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband