4.9.2009 | 06:43
Kæri Jónas.


Nú þykjast allir hafa vitað hvernig færi fyrir bönkunum okkar. En þeir vissu bara ekki að þú og Dabbi unnuð sólahringum saman við að afstýra þessu hruni sem þó varð. Hvernig hefði þetta orðið ef ykkar hefði ekki notið við ? Ég segi bara þá væri ekki föngulegt ástandið hér á landi núna.
Ég er viss um að útlendingarnir sem hlógu sig hálf máttlausa yfir því hvernig þið Dabbi létuð, hafa bara ekki skilið íslensku.
Ég heyrði tvo menn vera að tala um ykkur Dabba, þeir sögðu að á einhverjum fundi í Nýu York . Annar sagði að þú hefðir lýst fyrir fundarmönnum hvernig þú og Dabbi væruð á ná tökum á ástandinu. Menn litu hver á annan og svo brast á allsherjar hlátur. Hinn sagði frá fundi í alþjóðabankanum eða einhverju svoleiðis hafi Dabbi miklað fyrir fundarmönnum stórkostlegan árangur íslenskra athafna og fjármálamanna.
Sama þar, menn litu hver á annan og svo brast á hlátur sem aldrei ætlaði að enda. Svona getur öfundarpakkið látið frá sér fara á skítugum ölstofum. Að halda því fram að þú Jónas minn sem ert talinn til eins af prinsum Sjálfstæðisflokksins ásam gæsalappa, hafir ekki gert allt sem í þínu og eftirlitsins valdi var til að stöðva flokkfélaga þína í bönkunum, er bara kommúnistaáróður og ekkert annað. Svo eru þessar bjórfyllibittur að halda því fram að þínir menn í eftirlitinu hafi ekki tollað í stólunum fyrir tilboðum um betri tíð frá bönkunum. Þvílíkt bull og þvílík vitlaysa, mér verður flökurt.
Ég veit ekki betur en það hafi verið stöðugur straumur í eftirlitið með blómakörfur og koníaksflöskur allan desembermánuð, og maður tali nú ekki um allt nammið sem borið var í símadömurnar. Ég verð bara að segja það Jónas minn, það var fruntaskapur að henda þér út úr eftirlitinu eins og þú varst búinn að fórna þér fyrir okkur lansds- og sjálfstæðismenn. Jafnvel Dóri evru-verkfræðingur er hneygslaður og þá er nú mikið sagt.
Elsku Jónas minn, vonandi eru atvinnuleysisbæturnar þolanlega háar. Ef illa gengur að láta enda ná saman veit ég af presti í Grafarvoginum sem hleypur undir bagga með þeim sem minna mega sín.
Þín elskulega Magnea kveður að sinni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.