Kæri Kjartan,

Bandit Devil Bandit  

Þá eru eiturtungurnar byrjaðar að hjakkast á þér. Þeir gaspra út í loftið um að þú hafir ekkert vitað að bankinn þinn sem þú varst stjórnarformaður í hafi styrkt Fláráðs Grupp um einhverja aura. Hvað eru svo sem 20 millur í dag . Úps!! var þetta öfugt styrkti Fláráðs Grúpp kannski bankann eða var það Sjálfstæðisflokkurinn sem fékk styrkinn ?

Svo er þetta pakk eitthvað að fleypra um að þú skuldir bankanum eitthvað, þvílýkt og annað eins.

Þetta hyski ætlar bara aldrei að hætta þessu slúðri. Djö.... fannst mér það gott þegar þú tókst Gerðu í nefið fyrir aulaskapinn á fundinum, þar sem Gerða skilaði auðu, bara blankó í evrópuþvælunni. Meira að segja skildi gæsalappi hvað stelpan var að meina. Ég er líka viss um að þú fattaðir málið, en prinsipp er prinsipp það eiga þau nú að vita.

Maður tali nú ekki um snilldina að selja borginni þúfurnar í holtinu þegar enginn vildi kaupa lóðir.

Hvað á Grímur með að krefjast þess að þú biðjist afsökunar á bankahruninu, er hann með einhverja beiðnablokk eða hvað. Heldur hann bara að hann geti gasprað út í loftið um afsakanir ? Engu líkara en hann búi í glerhúsi maðurinn sá.

Hvaða rugl er eiginlega í fólkinu, að þú vitir ekki hvort innistæður íssleifsreikningann séu ríkistryggðar.

Veit þetta pakk ekki að þú ert lögfræðingur eða hvað ? Auðvitað veistu að þeir eru ekkert ríkistryggðir, þú ert jú búinn að segja það ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Það voru helv... bretarnir sem settu allt á annan endan í bankanum þínum með því að setja hryðjulög á ykkur í Bretlandi, það veist þú manna best Kjarri minn.

Þetta með blankheitin, þú getur alltaf reddað smáaur með því að selja kofann sem þú keyptir af þjófinum úr Súpergaggó. Hann bara fer í tjald í Laugardalnum, ekki að hafa áhyggjur af honum. Jónsi bæjó gæti líka skotið yfir hann skjólshúsi ef  honum verður kalt greyinu.

Þú átt áræðanlega eftir að fá fleiri línur frá mér elsku Kjartan minn

Bestu kveðjur.

Magnea.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband