Kæra Sigrún framsóknarformaður.

CryingErrmWhistlingWizard

Það var mál til að einhver með ómengað hugarfar léti þjóðina vita af þessum stórhættulega sníkli sem fluttur hefur verið inn frá Spáni og fleiri löndum í formi lostætis, sem háttvirtir kjósendur hafa gúffað í sig.

Þessi sníkill heitir víst á útlensku "toxoplasma gondii."

Hann getur haft þau áhrif fyrir þá sem hans neyta, að þeir taka upp á allskyns sérkennilegri hegðun. Dæmi eru til þass að mikil neysla þessarar innfluttu sælkeravöru valdi hegðunarröskun sem kemur fram í því að þeir sem verst eru settir velji sjálfa sig til forystu í stjórmálaflokkunm. Á vejulegt fólk sem hefur ekki mikil auraráð veldur þessi sníkill þau áhrif að þeir kjósa framsókn og íhaldið hvað svo sem þeir kalla sig.

Vinstri grænir, Samfylking,  Sjálfstæðisflokkur, Framsókn.

Þingmenn þessara flokka sem öllu ráða á þinginu hafa allir borðað í mörg ár í sama mötuneytinu við Austurvöll svo það er ekkert skrítið þótt svipuð einkenni þessa síkils hafi komið fram í öllu þessu fólki.

Elsku Sigrún mín ef það er ekki of seint, mæli ég með að þú látir detoxaplasma alla starfsmenn og þingmenn, og bannir þeim að éta spænskt gúllas og hamborgara úr nautakéti.

Sigrún mín ég fylgist áfram með hegðun Simma glópaláns og Bjarna gæsalappa, og læt þig vita ef einkennin hjá þeim breytast..

Þín Magnea

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband