Kæra dóma ráða

Kæra

Andasen. Mikið getur fólk verið leiðinllegt. Ég bara skil ekki að fólki skuli detta í hug að þú sjálfur ráðabruggarinn og laga ráðherran skuli þurfa að fara eftir þeim lögum sem eihverjir fávitar á Alþingi hafa sett. No way segi ég bara. Það getur enginn brotið lögin sem ekki hafur náð 1.5 metrum í hæð.

Auðvitað er ekki annað að gera en breyta þessari vitleysu. Auðvitað þarf að vera mögulegt fyrir ráðaherrann að koma sínum vinum að þótt einhver nefnd eða ráð sem skipuð er til þess velji einhverja velji þá ekki. Yes segi ég bara. Þetta flipp hjá þér kostaði okkur skattgreiðendur bara litlar 700.000 á hvorn vin, og hvað með það. Bara smáaurar.

Andasen mín láttu þennan hæstaréttardóm ekki halda fyrir þér vöku, það hafa margir á undan þér fengið svöna vitleysis dóma.

Flestir hafa sofið þá af sér á hrauninu og komið svo betri menn og konur þaðan.

Andasen mín ég kveð í bili.

Þín Magnea.


Kæri jafnréttis ráðherra

Kæri Ási jafniráðherra.

Ég er hundóánægð með ójafnvægið sem ég er beitt. Ég bara fæ engar strokur né klapp og enginn vill klípa mig. Ég hef reynt allt mögulegt til að vera eins og hinar allar sem sífellt eru að kvarta undan kossum strokum og klappi á rass.

Ég úða á mig á hverjum morgni rándýru ilmvatni “Channel 5,5 Extra-Turbo” sem ég fæ beint frá Channel sjálfum í París. Bæði hundar og kettir setja trínið upp í loftið og sniffa í 15 metra færi þegar ég nálgast, og dæmi er um að dýrin snúi við og elti mig.

Ég geng á 15 sentimetra háum hælum, er æðislega vel vaxinn horfi með hálfluktum augum á karmennina sem ég mæti, en ekkert skeður, þeir líta bara ekki við mér, engar strokur ekki neitt bara.

Ég heimta jafnrétti. Mér finnst að þú elsku drengurinn ættir að skerast í leikinn og gera eitthvað.

Það væri held ég góð hugmynd að stofna nefnd eða starfshóp til að laga þetta svo við séum jafnréttar allar.

Það er merkilegt að kvennfélasambandið skuli ekki hafa tekið þetta upp.

En hvað um það elsku drengurinn minn, ég treisti þeir eins og hverjum öðrum frammara til að laga þetta.

 

Þín einlæga Magnea


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband